Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 10

Náttúrufræðingurinn - 1940, Side 10
2 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN fiskirannsóknirnar eiga að rækja sína köllun í þjóðfélaginu. Á hinn bóginn hefur Fiskideildinni ekki verið séð fyrir fé til út- gáfustarfsemi og hef ég þó, með samþykki núverandi atvinnu- málaráðherra, ráðist í útgáfu, sem nú er hafin, á skýrslum frá deildinni. Verður nú gerð tilraun til þess að láta slíka útgáfu bera sig, með því að safna áskrifendum að ritum deildarinnar, en sjálfur varð ég að bera fjárhagslega ábyrgð á þessu ,,brölti“, en mér er á hinn bóginn í sjálfsvald sett hvenær ég hætti útgáf- unni og tek afleiðingunum. Af þessum ástæðum sá ég mér ekki annað fært en að reyna að létta af mér þeirri áhættu, sem Náttúrufræðingurinn hlaut að leggja mér á herðar, og urðu mér þá að liði vinsældir ritsins, og fann ég brátt manninn, sem vildi taka það að sér, en hann er Guðjón Ó. Guðjónsson, yfirprentari, ísafoldarprentsmiðju, Reykjavík. Honum hef ég nú selt Náttúrufræðinginn og ber því hér eftir að senda honum allar greiðslur fyrir ritið, alla reikn- inga til þess, nýjar pantanir, kvartanir um vanskil, sem og alla aðra málaleitun, er varðar fjárhagshliðina, þar sem hann er nú réttur eigandi Náttúrufræðingsins. Á hinn bóginn mun ég framvegis hafa ritstjórnina á hendi og vil ég með gleði láta rit- inu af hendi af frístundum mínum til þeirra starfa, eins og þótt ég ætti það sjálfur enn. Vil ég því biðja menn að snúa sér til mín með allt, sem .efni ritsins kann að varða, hér eftir eins og hingað til. Ég vil á þessum stað tjá hr. Guðjóni Ó. Guðjónssyni beztu þökk mína fyrir það, að hann ber hugsjón til þess að taka fram- tíð Náttúrufræðingsins í sínar hendur á slíkum erfiðleika- og óvissutímum og þeim, er nú standa yfir. Um leið hefur hann losað mig úr fjárhagslegri áhættu, og gert mér fært að hefjast handa um útgáfu rita fyrir Fiskideildina. Vil ég skora á alla velunnara Náttúrufræðingsins að standa sem fyrr á v.erði um framtíð hans og láta nýja eigandann finna það, að honum verði að trú sinni á framtíð Náttúrufræðingsins. Þá get ég ekki afsal- að mér eignarrétti á Náttúrufræðingnum, án þess að færa sér- staka þökk þeim, sem innsta hringinn hafa skipað. Vil ég þar telja Hið íslenzka náttúrufræðifélag, alla þá, sem hafa látið ritið njóta ávaxta af starfi sínu með því að skrifa í það, og þar með átt sterkan þátt í þeim vinsældum, sem Náttúrufræð- ingnum hefur tekizt að afla sér, og loks hinum mörgu, sem með brosi á brá hafa styrkt útgáfuna með auglýsingum. Loks vona
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.