Náttúrufræðingurinn - 1940, Síða 29
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
121
vesturströnd Grænlands næðu saman undir Innlandsísnum. T. d.
reyndi Lauge Koch að sýna fram á, að basaltbelti lægi um þvert
Grænland frá austri til vesturs og skipti gneisskildi þess í tvennt.
Við nánari rannsókn hefur komið í ljós, að basaltspildurnar á
Grænlandsströndum ná mjög óvíða inn undir jökulinn, en eru
einskorðaðar við miklar brotalínur eða sprungur, sem liggja í
jaðri gneisskjaldarins parallelt ströndinni, en gneisskjöldurinn
sjálfur virðist samfelldur og óbrotinn eftir endilöngu grænlenzka
meginlandinu. Basaltið á Vestur-Grænlandi er því ekki í land-
fræðilegu samhengi við basaltbeltið, sem liggur frá Bretlandi
til Austur-Grænlands. Bergfræðilegar og efnafræðilegar rann-
sóknir benda enn fremur í þá átt, að vesturgrænlenzka basaltið
sé nokkuð annars eðlis en brezk-íslenzka basaltið. Út frá þessum
forsendum líta nokkrir jarðfræðingar nú á síðustu árum (t. d.
Backlund) svo á, að basaltið á Vestur-Grænlandi beri ekki að
telja til sömu próvinsu og t. d. brezka eða austurgrænlenzka
basaltið.
En margt er samt líkt um basalthéruðin tvö, annað á austur-
strönd, hitt á vesturströnd Grænlands. Backlund hefur kallað
þau spegilmynd hvort annars. Beggja vegna hefur basaltmagmað
komið upp um sprungur í gneisskorpunni, sem liggja parallelt
ströndinni og mynduðust um leið og aflangar landræmur rifn-
uðu frá gneisskildi Grænlands og sigu niður sitt hvorum megin
við meginlandið. Þessi landsig héldu áfram, eftir að basaltið
kom upp, og sökk þá mikill hluti þess í sjó. Báðar basaltspild-
urnar eru að heita má jafngamlar, eða, varlegar sagt, basalt-
gosin hófust nokkurn veginn á sama tíma bæði austan jökuls
og vestan.
Að öllu samanlögðu, sem mælir með og móti, verður álitamál,
hvort telja skuli basaltið á Vestur-Grænlandi til brezk-íslenzku
próvinsunnar (3, 12, 15 og 11).
Ýmis önnur basalthéruð eru til í Norðurheimskautslöndun-
um en þau, sem nú hafa verið talin. T. d. á norðanverðu Vestur-
Grænlandi og Elles-Mere-landi þar vestur af. Sömuleiðis við
ósa Jenissei-fljótsins í Síbiríu og víðar. Þessi basalthéruð eru lítt
rannsökuð, og óvíst, hvort þau eru tertíer að aldri eða mesósóísk
(þ. e. frá miðöld jarðsögunnar) eða jafnvel ennþá eldri.
Skal nú ekki eytt fleiri orðum um þessi fjarlægari basalt-
héruð, en eingöngu rætt um aldur basaltsins í brezk-íslenzku