Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 66

Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 66
158 N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 6—7 rif hvorum megin við miðrifið. Flóastör (C. limosa). hh. Engar ryðbrúnar rótartrefjar á jarðrenglunum. k. Blöðin blágræn, 3—5 mm breið, með húðtotum. 1. Húðtotur báðum megin á blöðunum, en þroska- legri að neðanverðu. Blöðin oftast mjög stór, sérstaklega löng og langydd. Blaðslíðrin löng og mjög þroskaleg, gráleit — móleit. Vatna- jurt með ljósa gára eða upphleyptar smáörður á slíðrum og blöðum. Tjarnastör (C. rostrata). 11. Húðtotur aðeins á neðra borði blaðanna. Blöðin tiltölulega stutt og breið, skammydd. Vaxa ekki í vatni. Engir greinilegir gárar á blaðslíðrunum. m. Blaðslíðrin gráleit — móbrún. Blöðin venju- lega 2—4 mm á breidd. Varaopin hálf- hulin af fjórum þroskalegum, jafnstórum húðtotum dc Slíðuropið kringlótt, hjartalaga. Hinn lausi endi (sem að blöðk- unni snýr) slíðurhimnunnar stuttur, mjög þunnur og gagnsær. Fremsti hlutinn rifnar venjulega í tætlur. Belgjastör (C. panicea). mm. Blaðslíður móbrún — purpuralit. Blöðin venjulega 3—5 mm breið. Varaopin hálf- hulin af tveimur stórum og 4—6 smáum húðtotum. Liggja stóru húðtoturnar þvers- um á blaðinu, en hinar smáu á langveg- inn. ( g^g eða |^| ). Slíðuropið nær kringlótt. Hinn lausi endi slíðurhimnunnar allbreiður, snubbóttur, uppréttur, ljós-mó- leitur. Fremsti hlutinn nær talsvert út fyrir slíðrin. Grástör (C. glauca). kk. Blöðin ekki blágræn, stundum með húðtotum. n. Blöðin gulgræn eða grænbleik með húðtot- um. Varaop niðurgrafin, hálfhulin af húðtot- um. Ljósar örður eða gárar eru oftlega á blað- slíðrunum. Vaxa í vatni eða á votlendi. o. Blöðin venjulega 3—6 mm breið, alllöng. Blaðslíðrin gild og þroskaleg, gráleit. Verða

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.