Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 80

Náttúrufræðingurinn - 1940, Page 80
172 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN legt að athuga hann nákvæmlega. Aldrei sá ég hann taka neitt æti. Það, sem mest torveldar að gefa góða lýsingu á fuglinum, er hvað lágt hann flýgur, og svo hvað hann er varfærinn að koma ekki of nærri skipinu. Það má segja að honum bregði fyrir, en hann er svo fljótur að hverfa, að undrun sætir. Hann kom aldrei í skotfæri. Um fjölda fuglanna get ég ekki sagt, en mér er óhætt að fullyrða, að ég hafi séð þá 15 til 20 sinnum og aðeins einu sinni 2 saman. Mér þykir mjög ótrúlegt að þetta hafi verið sömu fuglarnir, því þeir virtust ekkert vera upp á okkur komnir, forðuðust skipið meira en algengir sjófuglar og voru hvorki í matarleit né þurftu að hvíla sig, sem margir fuglar þó gera. Síðast sá ég fuglinn að morgni þann 2. júní. Átt- um við þá um 60 sjóm. eftir til Vestmannaeyja. Getur nú ekki Náttúrufræðingurinn sagt mér hvaða fugl þetta hefir verið, enda þótt lýsingin sé ekki svo skýr, sem æskilegt hefði verið, helzt hvað stærðina snertir. Svona fugl sá ég út af Önundarfirði seint í ágúst 1936 aðeins einn á ferð. Hvað heitir fuglinn? Hefir hann sézt áður á þessum slóðum? Svona margir? Hvaðan kom hann? Hvert var hann að fara? Ég hefi aldrei fyrr siglt þessa leið á þessum tíma árs. Reykjavík, 17. júní 1940. Jón Júníusson. Þetta hefir verið Stóra sæsvala (Oceanodroma leucorrhoa) og er um hana rætt í fuglabók Bjarna Sæmundssonar (íslenzk dýr III. Fuglarnir bls. 494—497). Heimkynni hennar er norðanvert Atlantshaf og Kyrrahaf og verpir hún þar í ýmsum sæbröttum eyjum, hér á landi aðeins í Vestmannaeyjum. Hún er sann- nefndur úthafsfugl og helzt á sveimi í rökkrinu og á nóttunni, en hvílir sig á sjónum á daginn eða í holu sinni um varptímann. Fæða hennar er ýmis uppsjávardýr úthafsins. Nánustu ættingjar Stóru sæsvölunnar hér við land eru Litla sæsvalan og Fýlunginn. Á. F. Sjá mynd í Náttúrufr., IX. árg., bls. 139.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.