Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 13
SÖGNIN UM STÓRASJÓ
121
að þessu hafi verið hinn veginn farið, að Litlisjór hafi upphaflega
heitið Stórisjór. „Hinn rétti Stórisjór hefir orðið að Litlasjó, en
Litlisjór hefur týnt nafninu,“ segir hann (7). Það nafn hafi eigi
þótt nógu mikið í munni síðar meir og þá verið flutt á annað vatn,
sem þjóðtrúin skóp. Guðmundur Árnason segir: „Nafnið Litlisjór
bendir til þess, að annar stærri sé til,“ (1), og má það að visu til
sanns vegar færa, en báðir telja þeir, Þorvaldur og Guðmundur,
að sjór merki stöðuvatn i íslenzku likt og „so“ i dönsku. Litlisjór
hefur heitið svo, að minnsta kosti frá upphafi 19. aldar, en sennilega
allt frá öndverðu (3). Hann einn allra stöðuvatna á íslandi hefur haft
endinguna sjór, unz Þorvaldur Thoroddsen bjó til nafnið Langasjó
í likingu við Litlasjó og Stórasjó. Á íslenzku merkir sjór ekki stöðu-
vatn né heldur í norskum mállýzkum yfirleitt, þótt undantekningar
séu til. Sjór merkir salt vatn, hafið.
Nöfnin Litlasjó og Stórasjó virðist mér þvi mega skýra þannig: Þá
er menn komu inn um Veiðivötn, gat að líta geysimikið stöðuvatn, „lik-
lega nærri eins vatnsmikið eins og öll hin til samans“ (5). Eigi sá út
yfir það, og var því líkast sem komið væri að firði. Því nefndu menn
þetta vatn Litlasjó, litla /lafiS. Til samanburðar er fróðlegt að athuga
það, sem segir i Flateyjarbók um mesta vatn Noregs: „Mjörs er svá
mikit vatn, at þat er líkara sjó.“ Siðar, er aldir liðu og menn komust
niður í dönsku, var ekkert óeðlilegt, að menn sæju ekki lengur neina
meinbugi á þessu nafni og héldu, að sjór merkti stöðuvatn í þessu
sambandi. Hitt var þó ekki kyn, þótt þjóðtrúin tæki slíku nafni fegins
hendi, fyndi í því efni til samanburðar og skapaði sér Stórasjó, prýddan
öllu því, sem þjóðina dreymdi um á öræfum Islands.
RITSKRÁ
1. Guðmundur Árnason: Er Stórisjór fundinn? Tíminn, Rvík 31. okt. 1925.
2. Sveinn Pálsson: Ferðabók, Rvík 1945, 655. bls.
3. Björn Gunnlaugsson: Um stöðvar útilegumanna. Islendingur, Rvík 1861, 11.—
13. bls.
4. Ólafur Pálsson: Könnuð fjöll. Suðri, Rvik 1884, 127. bls., og 1885, 1.—2. bls.
5. Þorvaldur Thoroddsen: Ferðabók, II. bd., Kbh. 1914, 242. bls.
6. — Op. cit., 283. bls.
7. — Op. cit., 243. bls.
8. Flateyjarbók, II. bd., Kria 1862, 550. bls.
Sjá enn fremur:
Fr. le Sage de Fontenay: Hvar er Stórisjór? Tíminn, Rvík, 12. des. 1925.
— Ferð til Vatnajökuls og Hofsjökuls sumarið 1925. Andvari, Rvik 1926.