Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 36
144
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
land gæti í þessu tilfelli verið grunnsvæðið milli Grænlands og
Bretlands.
Að lokum verður þó að segja, að þótt þessi skýring á upphafi og
eldri sögu Islands virðist aðgengilegust í bili, þá er rétt að hafa augun
opin fyrir þeim möguleika, að síðar komi fram betri skýring á til-
veru landsins og eyðingu á stóru fornu landsvæði. Jarðsaga Norður-
Atlantshafsins og landsvæðanna kringum það, er enn í of mikilli
móðu til þess að vissa fáist um elztu sögu Islands.
FlNNI DRÆTTIR ÞYNGDARSVIÐSINS
Meginsvipur þyngdarsviðsins fyrir landið í heild er fólginn í
þyngdarskálinni, sem er yfir 75 milligala djúp. Sú skál byggist á
heildarsvip efnisdreifingarinnar undir landinu. En jnargvislegar
smærri ójöfnur eru sýnilegar í þyngdarsviðinu og þær stafa frá stað-
bundnari einkennum í dreifingu efnismagnsins. Til þess að hið stað-
bundna í þyngdarsviðinu komi fram sem skýrast, er æskilegt að
breyta kortinu þannig, að ójöfnurnar komi fram á sléttu undirlagi
í stað þess að liggja í skál. Hvernig þessi breyting er framkvæmd er
ekki nauðsynlegt að ræða hér. Á yfirlitskortinu á 4. mynd og á sér-
kortinu á 5. mynd hefur þessi breyting verið gerð.
Við athugum nú fyxst Bárðardalinn, þar sem landið hefur mis-
gengið um mörg hundruð metra. Létt lag undir basaltinu hér gæti
komið fram í þyngdinni eins og áður var bent á. En hér sjást engin
teljandi missmíði. Þetta þýðir, að slíkt létt undirlag er annað hvort ekki
til eða liggur mjög djúpt, eða er þunnt. Ef um þykkt lag væri að ræða,
hlyti dýpið að vera meira en 3 km eða svo. Og yfirleitt fer á sömu
lund, þegar athugaðar eru aðrar línur, þar sem veruleg misgengi
hafa orðið, eða virðast hafa orðið. Þyngdarsviðið leiðir ekki á þennan
hátt í ljós léttari undirgrunn. Það er fyrst, ef við lítum á stór svæði,
eins og Vestfirðina í heild, að eitthvað athyglisvert kemur fram. Við
finnum sérstaka þyngdarskál fyrir Vestfirðina, og sama er að segja
um Austfirðina og hálendið miRi Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
Þetta bendir til létts lags í undirgrunninum, en það er djúpt á það,
þar eð rendur skálanna eru óskarpar. Hér eru ekki tök á að sýna,
hvernig vinna má úr kortinu, og læt ég nægja að skýra frá niður-
stöðum. Kortið má skilja þannig, að neðan við svo sem 5 km dýpi
taki við mjög þykkt létt lag með eðlisþunga eitthvað nærri 2,2—2,4.