Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 60
166
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
að ísaskil hafa þar legið norðar en vatnaskil liggja nú. Það kemur
ekki á óvart, því að Lónsheiði norðan Varpa er þröngur dalur auk
þess, sem fyrr getur, að þar er hallaminna en suður af.
Hæstu fjöllin austan að dalnum Lónsheiði eru Ljósárdalstindur 725
m y. s. og Snjótindur (skráður 713 m á korti Geodæt. Inst., en er
yfir 800 m bæði samkvæmt hæðarlínum á sama korti og mælingu
minni). Skarðið milli þeirra nefnist Hvaldalsvarp og er nálægt 460
m y. s. Þar eru vatnaskil milli Lónsheiðar og Hvaldals, sem opnast
suðaustur til sjávar. Á Hvaldalsvarpi eru klappir fagurlega heflaðar
og rákaðar í stefnu þvert yfir varpið til Hvaldals. Þær rákir stefna
af Lónsheiði þar, sem hún er 240 m lægri en varpið og sanna, að
þar á heiðinni hefur jökullinn verið meira en 240 m þykkur.
I Hvaldal má víða finna jökulrákir, og stefna þær vitanlega út
dalinn til sjávar. Eins og venja er um slíka dali verða þær rákir þeim
mun daufari og vandfundnari sem hærra kemur upp hlíðarnar. I
Hvaldal hef ég fundið slíkar jökulrákir upp í 200 m hæð yfir dal-
grunn, við Háagil á Hvaldalshálsi, en þar virðist taka algerlega fyrir
þær. Má því ætla, að á síðasta jökulskeiði hafi skriðjökullinn í Hval-
dal náð þessari hæð, er hann var upp á sitt bezta, en aldrei orðið
miklu þykkari.
Eyjafjöll og FljótshliS.
Slakkinn milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls, þar sem skáli
Fjallamanna stendur á Fimmvörðuhálsi, er 1000 m hár y. s. Þar
stefna jökulrákir þvert út af vatnaskilum til beggja hliða, norður til
Goðalands og suður á Skógaheiði. Ég hef að vísu ekki fundið þær á
sjálfum háhryggnum, en allvíða á brúnum báðum megin, og er aðeins
um 1^2 km milli efstu ráka, sem stefna suður, og hinna efstu, sem
stefna norður (ath. í ágúst 1946). Efstu rákirnar eru fínar og grunnar
rispur, eins og vænta má svo nærri ísaskilum, en sýna þó, að jökull
getur rákað undirlag sitt í minna en 1 km fjarlægð frá ísaskilum.
Raunar hef ég víðar fundið merki þessa uppi á f jöllum, t. d. á Hlöðu-
felli í Árnessýslu, þar sem hárfínar rispur stefna eins og geislar út
frá hákollinum og byrjar að gæta aðeins 4—5 hundruð metra frá
honum.
Hér verður að hafa í huga það, sem ég tók fram í inngangsorðum,
að flestar jökulrákir eru ristar af jökli, sem er að hverfa af þeim stað,