Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 45
ELDGJÁ
151
ekki í vafa um, að í fyrsta þætti gossins hefur það verið mjög „ex-
plósift“, þótt eitthvert hraun kunni þá einnig að hafa runnið. Gjár-
veggirnir eru aðallega úr móbergi, en sums staðar er að finna lög,
er virðast vera harðnaðar jökulurðir (tillít), t. d. þar sem Nyrðri
Öfæra fellur niður í gjána að vestan, 3 km sunnan við Gjátind. Mynd-
ar áin þar fossa, eina hina fegurstu á íslandi (2. mynd). Yfir neðsta
fossinum er hraunbogi. Telur Sapper hann myndaðan þannig, að
spilda hafi hlaupið niður úr gjárbarminum og áin grafið sig undir
hraunlag efst í henni.
Efst í gjárbörmunum getur alls staðar að líta þverbratta veggi 10
—15 m háa. I þeim skiptast á lög af gjalli, hraunkleprum og hraun-
lögum, sem aðallega virðast hafa myndast við samruna hraunklepra,
svo sem átt hefur sér stað við Grænavatn, Ljótapoll og viðar. Efast
ég um, að nokkurt hraun hafi raunverulega flætt út yfir hábarma
gjárinnar. Vestan gjár ná þessi kleprahraunslög allhátt upp frá gjánni,
og getur þar ekki verið um rennsli frá gjánni að ræða, og ekki held
ég heldur, að þar hafi hraun runnið úr samsíða sprungum, eins og
Sapper taldi, heldur hafi það sprautazt þangað upp (lava fountains).
Niður gjárveggina teygjast hér og þar svuntur úr hraunkleprum (t. d.
til vinstri á 1. mynd), og rétt norðan við farveg Ströngukvíslar gegn-
um gjána getur að líta þverbrattan móbergsvegg, brynjaðan hraun-
kleprum. 1 öðrum þætti gossins hefur feikilegt hraunmagn flætt í
stríðum straumi austur úr gjánni um farveg Ófæru til Skaftár og
sameinazt við Hánípufit hraunelfu þeirri, sem runnið hefur úr mið-
gjánni niður með Syðri Ófæru, en af hraunelfum þessum tveim eru
tilorðin Eldgjárhraunin austan Kúðafljóts, er þekja um 350 km2
lands. 1 lokaþætti gossins hafa myndazt hraungígar hér og þar á gjár-
botninum. Getur að líta einn þeirra á 5. mynd (sbr. kortið). Er hann
mjög reglulegur, tvöfaldur og opinn austur úr. Syðst í gjánni sunnan
Ströngukvíslar er djúpur gígur, en annar grynnri og meiri um sig
nokkru norðar, og hefur þar staðið hrauntjörn í. Nokkru sunnan við
Ófærufoss er reglulegur gígur, sem áin hefur skorið burt að hálfu,
og vera má, að þar séu gígar huldir árframburði. Síðasta stig gossins
hefur því verið myndun gigaraðar á árbotninum.
Svo sem kunnugt er taldi Þorvaldur Eldgjá hafa gosið á fyrri hluta
10. aldar og byggði þetta á frásögnum Landnámu um Moldagnúp og
Hrafn hafnarlykil, er yfirgáfu Álftaver vegna jarðelds. Taldi Þor-
valdur hraunin austan Kúðafljóts og vestan runnin í sama gosi. Ég
hef síðustu árin reynt að komast að niðurstöðu um þetta með hjálp