Náttúrufræðingurinn - 1955, Blaðsíða 30
138
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
lögum. Neðri myndin sýnir afstöðu eftir að brot og misgengi hefur
átt sér stað. Ef við mælum þyngdina á láréttu línunni 0—0, ætti hún
að reynast hærri á spildu A en B.
ÞYNGDARMÆLINGAR HÉR Á LANDI
Um pendúlmælingar Dana árið 1900 var áður getið. Næst koma
mælingar gerðar af þýzkum leiðangri undir stjórn O. Niemczyks árið
1938. Voru það pendúlmælingar á fáeinum stöðum (Akureyri, Laug-
um, Grimsstöðum á Fjöllum), og með samanburðarmæli fengust alls
39 mælistaðir á línu frá Akureyri til Grímsstaða. Hugmyndin var að
prófa, hvort missigsins um Bárðardal gætti í þyngdinni, sbr. niður-
lag síðasta kafla, og ennfremur átti að prófa, með endurtekningu
mælinganna síðar, hvort þyngdin breyttist með tímanum á eldfjalla-
svæðinu milli Mývatns og Jökulsár.
Árið 1950 tókst samvinna um þyngdarmælingar milli íslenzkra
aðila og fransks Grænlandsleiðangurs undir stjórn P. E. Victors. Var
mælt á 134 stöðum, er voru dreifðir um Suðurland, frá Reykjavík til
Kirkjubæjarklausturs og frá sjó inn á Hveravelli. En jafnframt var
það þessi franski leiðangur, sem tengdi Skólavörðuna við miðstöð
þyngdarmælinga í París með margendurteknum samanburðarmæl-
ingum.
Þessar mælingar sannfærðu okkur um, að við þyrftum sjálfir að
eignast þyngdarmæli, og Jarðboranir ríkisins keyptu slikan mæli
snemma á næsta ári. Notaði ég hann næstu þrjú sumur til yfirlits-
mælinga og hætti við um 800 mælistöðum, sem dreifðir eru svo til
um allt landið. Á þennan hátt varð til þyngdarkort yfir Island. Það
sýnir okkur annars vegar heildarsvip þyngdarsviðsins, miðað við allt
landið, og hins vegar mikið af fínni dráttmn, einkum sunnan- og
vestanlands, þar sem landslagi er svo háttað, að hægt var með góðu
móti að koma við þéttum mælingum.
Auk þess hef ég gert sérkort, með mjög þéttum mælingum, af
nokkrum jarðhitasvæðum, og eru þau gerð sem liður í jarðhitarann-
sóknum.
Þá má geta þess, að þyngdarmælirinn hefur verið notaður í al-
þjóðlegri samvinnu til að mæla áhrif flóðkraftanna á þyngdina.
Þyngdin á hverjum stað er daglegum breytingum undirorpin vegna
flóðáhrifa tungls og sólar og nema sveiflurnar 0,1 til 0,2 milligal.