Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 7

Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 7
LANGISJÓR OG NÁGRENNI 149 1. mynd. Langisjór; horft norðaustur. Langisjór jrom Ihe southwest. Ljósm.: Guðm. Kjartansson. og tæki til landmælinga, er ekki hægt annað en dást að, hve mæl- inganiðurstöður hans eru nærri lagi: Á hinum nýja uppdrætti íslands (Geod. Inst.) er lengd Langasjóar 20.5 km (Þ. Th. 22.6 km, en síðan hefur vatnið stytzt af aurburði úr jöklinum, sjá síðar), hæð vatnsins yfir sjó milli 660 og 680 m* (Þ. Th. 664 m) og hæð Sveinstinds 1090 m (Þ. Th. 1098 m). Þessi landkönnun Þorvalds fyllti upp mikla eyðu á Uppdrætti íslands á svæðinu milli Skaftár og Tungnár. Þegar sama ár gerði liann kort af Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem Langisjór er rétt teikn- aður í aðalatriðum, nema hvað á er sýnd renna úr suðvesturenda hans suður í Hvanngil og Skaftá, en ekkert annað afrennsli. (Þorv. Th. 1893—94). Nú segir Þorvaldur reyndar, að þessi kvísl síist gegn- um sandöldur. Slíkt neðanjarðarfrárennsli er naumast rétt að kalla afrennsli og því síður marka á kort sem vatnsfall. Er mér því ekki * Samkv. hæðarlínum, því að engin hæðartala er á vatninu á kortinu. Mér mældist Langisjór 648 m. y. s., notaði loftvog og gekk út frá hnúk með hæðartölunni 500 á kortinu við SV-enda vatnsins.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.