Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 13
LANGISJÓR OG NÁGRENNI
155
3. mynd. Bólstraberg yiir móbergi í Grænaíjallgarði.
Pillow basalt resting on móberg in Grœnijjallgarður.
Ljósm.: Guðm. Kjartansson.
En í fjöllunum kringum Langasjó er þessu svo óvenjulega far-
ið, að þar er leitun að blágrýtissteini í lausum jarðlögum, hvað
Jrá að blágrýtisklöpp. Þó vantar þar ekki lausagrjót, en það er víð-
ast hvar eingöngu úr móbergi, jafnvel grettistökin á melunum og
kastmölin við vatnsborðið. Nálægt Langasjó hef ég fundið blágrýti
í föstu bergi á aðeins þremur stöðum: 1. Fast sunnan við skarðið,
sem bílaslóðin liggur um yfir Grænafjallgarð, röskan kílómetra
vestur frá vatnsendanum er allstór klettur úr óvenju lögulegu
bólstrabergi, og eru bólstrarnir úr mjög stórdílóttu blágrýti (3.
mynd). Dílarnir eru hvítir feldspatkristallar, allt upp í 3 cm að
þvermáli. 2. í norðurhlíð Sveinstinds, ofanvert við miðju, er lá-
rétt blágrýtislag í móberginu. Lagið er aðeins 1—2 m að þykkt, en
liggur óslitið a. m. k. nokkur hundruð metra spöl, og mun það
verá innskotslag, Ji. e. yngra en bergið bæði fyrir ofan og neðan.
3. Loks sá ég lítinn blágrýtiskleggja norðan í syðri hrygg Fögru-