Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 15
LANGISJÓR OG NÁGRENNI
157
4. mynd. Horl't af Sveinstindi inn yfir Langasjó, Fögrufjöll og Skaftáraura til
Vatnajökuls. Vestasta lónið í Fögrufjöllum sést vel og glittir í fleiri.
View from Sveinstindur, looking N. E. Frotn left to right in the picture: Langi-
sjór, the double ridge of Fögrufjöll and the fluvioglacial plain of the Skaftá.
Ljósm.: Guðm. Kjartansson.
rís liæst í bungunni Breiðbak (1018 m) upp a£ miðri norðvestur-
strönd Langasjóai', en lækkar fram og greinist í samsíða fjallgarða
með sundum á milli. Þar er Grænifjallgarður næst Langasjó, gróð-
urlaus þrátt fyrir nafnið. En að suðaustanverðu við Langasjó, milli
hans og Skaftár, liggur aðeins einn mjór fjallgarður, Fögrufjöll.
Raunar eru þau klofin að endilöngu af djúpri og þröngri geil, svo
að einnig má til sanns vegar færa, að fjallgarðarnir séu tveir. Við
verðum að kalla þá nyrðri og syðri hrygginn eftir málvenju Skaft-
ártungumanna, því að ógerlegt er að mynda lýsingarorð af sam-
setningunum norðvestur og suðaustur. Suðurhryggurinn er bæði
samfelldari og hærri, fullir 900 m y. s. á nokkrum stöðum. Fögru-
fjöll rísa brött upp frá Skaftá annars vegar og Langasjó hins vegar.
Báðum megin og þó einkum með vatninu eru víða háir hamrar og
móbergssvaðar, en hvergi regluleg klettabelti, enda engin blá-