Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 42
184 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Danski haffræðingurinn Steemann-Nielsen hefur athugað sam- bandið milli plöntu- og dýrasvifsins við ísland. Hann fann, að í maí verður hámark kísilþörungagróðursins í strandsjónum. Á þeim tíma fannst lítið af dýrasvifi í strandsjónum, hámark þess varð seinna, þar sem þróun þess er seinni. Hins vegar hafði þörunga- gróðurinn í ýmsum fjörðum náð hámarki þegar í apríl, og í maí fannst mikið af dýrasvifi í þessurn fjörðum. Orsök þess, að áta fannst h'tið á Norðurlandsmiðum sumarið 1954, þrátt fyrir mikið hámark plöntugróðurs, gæti hugsast sú, að hrygningin sjálf eða klak eggjanna hefði gengið illa, og átustofninn því aldrei orðið stór. En hvernig stendur á því, að dýrasvifið virðist dafna vel, þótt h'tið finnist af plöntum, þegar svifdýrastofninn er mestur? Þessari spurningu er ekki auðsvarað, og hafa komið frain nokkrar tilgát- ur og kenningar til skýringar á þessu fyrirbæri. Ein aðgengilegasta skýringin er sú, að svifdýrin éti svo mikið af plöntugróðrinum, að þau haldi honum niðri, og því verði hans lítið vart, þegar mergð svifdýranna er mest. Með dæmi má sýna fram á, að þetta getur átt sér stað. Hugsum okkur, að við hefðum eina milljón plöntufruma, og að svifdýrin ætu úr þessum plöntustofni jafn margar frumur og í liann bættust við skiptingu plantnanna, þannig að plöntu- stofninn stæði óskertur. Ef nú svifdýrin ætu tvöfalt fleiri plöntu- frumur væru aðeins eftir 27.000 plöntufrumur að fimm dögum liðnum. Ætu svifdýrin fimm sinnum meira en upprunalega var gert ráð fyrir, myndi þessi milljón frumu plöntugróður algjör- lega uppurinn eftir fimm daga. Þótt við íslendingar höfum aflað okkur staðgóðrar þekkingar á högum ýmissa nytjafiska, er langt frá því, að átan í sjónum við ísland sé fullkönnuð né lifnaðarhættir hennar þekktir til fulls. Er nrikil nauðsyn að rannsaka hér ýmis fyrirbrigði, er telja verður algjöra undirstöðu að fiskveiðum okkar, sem eru forsenda fyrir lífi fólksins í landinu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.