Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 49

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 49
DÚDÚFUGLINN 191 sameinað konunglega listasafninu í Kaupmannahöfn. En 100 ár- um síðar var því safni skipt og dýrasafnið skilið frá. Eftir það hefur dúdúhöfuðið gist dýrasafnið í Kaupmannahöfn, og geta Danir verið lireyknir af að eiga slíkan dýrgrip. í lok 18. aldar og byrjun þeirrar 19., var grafið upp dálítið af stórum íuglsbeinum á eynni Rodriguez og þau flutt til Bretlands til rannsóknar. Var álitið, að þau væru úr dúdúfugli þeirn, er lifði á Mauiitius, en síðari rannsóknir hafa sýnt, að svo var ekki. Eins og áður er getið, fannst mikið af hinum eiginlegu dúdú- fuglsbeinum á eynni Mauritius 1865 og síðar. Aðalfundirnir voru í mýrarsundi nokkru, er Frakkar nefndu Mare aux songes, og voru beinin þar eingöngu í pyttum, sem voru þétt yfirgrónir með vatna- jurtum, en hvergi annars staðar í mýrinni, þó að þar mætti finna gnægð beina af öðrum dýrategundum. Hvernig á þessu stendur, er mönnum ekki fyllilega ljóst. En er ekki líklegt, að fleiri en ein dúdúfuglstegund Jiafi lifað samtímis á Maskarenhas-eyjunum? Ýmislegt bendir til þess, að svo liafi verið, og að beinin, er fundust á Rodriguez hafi verið af einni slíkri tegund; líka gæti verið, að hún hafi verið útdauð, er eyjarn- ar byggðust. Árið 1613 er getið um einkennilegan fugl á eyjunni Réunion, sem eftir lýsingunni að dæma hefur verið einlivers kon- ar dúdúfugl. Einn sagnaritarinn segir, að hann hafi verið á stærð við kalkún, mjög feitur, vængjalaus og hvítur að lit; og annar sagnaritari segir hann einnig livítan og með svart í vængjum og stéli. Þá eru og nokkur málverk til af fuglinum, og er hann alltaf sýndur hvítur. Á einni myndinni eru nokkrar fjaðrir upp úr Iiöíðinu, og nef, vængir og stél frábrugðið dúdúfuglinum á Mauri- tius. Það lítur því út fyrir, að hér liafi verið um tvær náskyldar tegundir að ræða, sitt á hvorri eyju. Árið 1708 kom út bók eftir mann að nafni Leguat, er átti að vera franskur aðalsmaður, sem gerður var útlægur úr landi sínu. Hann ferðaðist víða og kom meðal annars á Maskarenhas-eyjar, eftir því sem skýrt er frá í bók hans. I bókinni er mergð mynda af einkennilegum fuglum, er liann sá á eynni Rodriguez. Einn þeirra virðist líkjast mjög dúdúfuglinum, eftir myndum að dæma. Leguat lýsir honum ítarlega og lifnaðarháttum hans, og nefnir hann Solitaire eða ,,einbúann“. Töldu fuglafræðingar, að hér væri kominn fugl sá, er beinin fundust úr á eynni. Væri hér senni-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.