Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 53
STÓRIR LAXAR
195
Grímseyjarlaxinn.
Ljósm.: Sigurður P. Björnsson.
3—4 sjómílur suðvestur af Grímsey og vóg hann 16 pd. Hinn lax-
inn veiddist af bv. Tryggva gamla 1942 eða 1943 suðvestan við
eyna, og var hann 7—8 pd að þyngd.
Eftir veiði Grímseyjarlaxins hefur töluvert verið rætt um stóra
laxa og rnargt rifjazt upp um þá. Skal nú skýrt frá því markverð-
asta, sem höfundi er kunnugt um stóra laxa, sem veiðzt hafa hér
á landi.
Risalax veiddist í silunganet í Hvítá í Borgarfirði hjá Flóða-
tanga á síðustu öld. Menn eru ekki á eitt sáttir um þyngd lians,
hvenær hann var veiddur eða af hverjum. í Veiðimanninum nr.
18., 1951, og síðar í bókinni „Að kvöldi dags“ 1952, skýrir Björn
]. Blöndal, rithöfundur, frá því, að lax, sem talinn var 70 pd,
hafi veiðzt í Hvítá frá Flóðatanga í Stafholtstungum. Björn bar
sögu þessa undir Þorstein bónda Böðvarsson í Grafardal, sem
heyrt hafði hana af vörum sömu manna og Björn. Þorsteinn taldi
þyngd laxins hafa verið 65 eða 70 pd, en hélt þó síðari töluna vera
réttari. Stefán Ólafsson telur í grein í Veiðimanninum nr. 19,
1952, að Björn fari rétt með þyngd laxins og annað í frásögninni