Náttúrufræðingurinn - 1976, Page 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
119
35, sem þar voru, en aðrir bæir stórskemmdust, jarðrask varð mikið,
sprungur komu í jörð og jarðvegur umhverfðist. Skarðsfjall á Landi
klofnaði allt og sprakk, ljallið hristi sig eins og hundur nýkominn
af sundi. Grasvegurinn losnaði víða frá klöppinni og seig niður á
láglendi. Stærstu sprungurnar náðu yfir sveitina þvera frá Ytri-
Rangá um Lækjarbotna og Flagbjarnarholt vestur að Þjórsá, um
15 krn lengd.
Morguninn eftir, 27. ágúst, kom nýr kippur. Var hann svo harður
á Landi, að fólk, sem úti var, gat. ekki ráðið hreyfingum sínum en
steyptist niður og veltist um jörðina. Um svipað leyti kom harður
kippur í Vestmannaeyjum, hrundi grjót á menn við fýlatekju í
Heimakletti og slasaðist einn þeirra svo alvarlega, að hann lést síðar
af þeim áverkum.
Hlé varð nú á hörðum skjálftum níu daga, en 5. september kl.
11 um kvöldið hristist Suðurlandsundirlendið enn af jarðskjálft-
um, sem gerðu engu minna tjón en hinir fyrri. Voru þeir langharð-
astir um Skeið, Holt og Flóa. Upptök fyrsta kippsins munu hafa
verið mjög nærri Selfossi. I Flóa féll fjöldi bæja til grunna en hinir
skemmdust flestir meira eða minna. Mikið hrundi af björgum úr
austanverðu Ingólfsfjalli, einkum kringum Tannastaði, og eru þau
áberandi við þjóðveginn. Býlin þrjú á Selfossi hrundu. Fólk flýði
þar nakið úr rúmunum og út um glugga, þegar hvinurinn heyrðist
og ósköpin dundu yfir. Þó kom kippurinn svo fljótt, að tæplega var
ráðrúm að hlaupa ofan úr rúmunum. Votmúlahverfi, 7 býli með
yfir 80 húsum, og Smjördalahverfi, 5 býli með um 50 húsum, hrundu
gjörsamlega. í þessari liviðu köfnuðu hjón á Selfossi, þegar súð lagð-
ist á rúm þeirra. Brúin á Ölfusá skemmdist töluvert, atkerishleinar
brustu, hliðarstrengir losnuðu og stöpull undir trébrú, þar sem veg-
urinn lá frá brúnni að sunnanverðu, datt, svo trébrúin hékk skökk
og brotin. LTm stund varð öll umferð að hætta um brúna önnur
en fótgangandi manna. Rúmri mínútu eftir þennan skjálfta undir
Selfossi varð annar stór skjálfti nærri Þjórsárbrú. Var hann harð-
astur um neðri hluta Holta, austanverðan Flóa og syðst á Skeiðum
og í Grímsnesi. Berg hrundi frá stöplum Þjórsárbrúar, svo eigi stóð
nema mjótt haft að stöplunum en brúna sakaði lítið. Norðaustur
af gamla ferjustaðnum Króki í Holtum varð mikið jarðrask. Þar
seig jarðvegstorfa um 2 m á þykkt og heill hektari að flatarmáli
niður 1—2° halla. Torfan bcigglaðist í öldur og neðst vafðist jarð-