Náttúrufræðingurinn - 1976, Síða 38
140
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
ist með hafstraumum. Hinar útlendu baldursbrár, sem oft berast
hingað með fræi, eru flest liávaxnir og beinvaxnir stofnar 50—90
cm á hæð, með fjölda blómkarfa. Hinar íslensku eru miklu lægri
og þéttvaxnari og blaðflipar þeirra tiltölulega þykkri og kjötkennd-
ari en á hinum útlendu. Sjaldan lifa útlendu baldursbrárnar lengur
en 1—2 sumur.
Ymis afbrigði eru til af baldursbránni. Bera sum þeirra fremur
lítið af fræjum og eru góðar garðaskiautjurtir, t. ck Vestmannaeyja-
baldursbrá. A afbrigðinu discoflora vantar allar eða flestar tungu-
laga jaðarkrónurnar. En á afbrigðinu liguliflora eru öll eða flest
blómin með tungukrónum. Okkar baldursbrá er strandjurt í V.-
Evrópu og á ströndum Eystrasalts. Hún er oftast fjölær, eða tvíær-
fjölær. í nágrannalöndunum er liávaxnara, tvíært afbrigði algengt.
(Varla talið sjálfstæð tegund?)
Baldursbrá með flata stöngla og jafnvel flatar körfur hafa öðru
hverju fundist bæði hér og erlendis. Elsta dæmið, sem ég veit
um afbrigðilega baldursbrá hérlendis er frá Vallarnesi á Héraði
árið 1918. Sú var með margar körfur samrunnar í eina stóra spor-
baugótta, á enda mjög gilds stönguls, sem virtist samvaxinn úr mörg-
um leggjum. Sérlega virtist mikið bera á flöturn baldursbrám á
tímabilinu 1950 og fram um 1960 og það á ýmsum stöðum, t. d. í
Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Akranesi, Laugarvatni og vestur
í ísafjarðarkaupstað. Mikið var af flötum baldursbrám úti í Örfiris-
ey við Reykjavík árum saman. Sumarið 1952 mældi ég í Reykjavík
flatvaxna baldursbrá 65 cm háa, með 7 cm breiðan og 2 mm þykkan
stöngul. Körfurnar voru flatar og aflangar, jafnvel bugðóttar, líkt
og ormar. Sums staðar voru tvær körfur vaxnar saman. Fáeinar litl-
ar eðlilegar körfur voru neðan við óeðlilegu körfurnar. Voru hin-
ar flötu mjög misstórar, t. d. fjórar stórar efst á sumum eintökum,
en á öðrum skiptust á misstórar körfur efst á stönglinum. Sumir
stönglar lágu hálfflatir við jörð og voru blöð aðeins á efra borði
þeirra. Svipaðar baldursbrár fundust á Akranesi. Um miðjan júlí
1962 fundu börn í Kópavogi nokkrar slíkar. Mældist sú stærsta 41
cm á hæð, breidd hins flata stönguls 8 cm, en þykktin aðeins 3 mm.
Baldursbrá, send vestan úr ísafjarðarkaupstað sama sumar, reyndist
70 cm há, með flata 7 cm breiða stöngia og margar körfur, flestar
flatar. — Hefur nokkur séð flata baldursbrá s. 1. sumar?
í ættkvísl baldursbráar er olía með sótthreinsandi og rotverjandi