Náttúrufræðingurinn - 1979, Síða 132
núna langt neðan við yfirborð Land-
brotsvatna.
Mestir farvegir í Landbroti eru
vestur af Seglbúðum og Ytra-Hrauni.
Austan við túnið í Seglbúðum er
Stemma, lítill lækur, sem á upptök í
hrauninu norðvestur af bænum. Far-
vegur með lóðréttum hamraveggjum
skerast þar inn. Virðist liann mynd-
aður þannig að mikið vatn hafi þar
runnið fram undir hrauninu og graf-
ið undan því þar til hraunþekjan féll
niður og grófst niður í sandinn. Bas-
althraun rnynda ævinlega þverbratta
veggi sökum þess að stuðlar myndast
hornrétt í kólnunarflötinn.
Sagnir eru urn festarkeng í berginu
við Stemmu, en vart er það annað en
þjóðsaga ein enda eru slíkar sagnir
víða til og varasamt að taka á þeim
mark.
1 Þiðranda þætti og Þórhalls (Útg.
Guðna Jónssonar 1947) er talað um
skipkomu í Sýriækjarós, en Sýrlækur
er skammt norðan við Eystra Hraun
í Landljroti og ekki þesslegur að
hann hafi getað myndað skipgeng-
an ós, og hafi þar stórá eitt sinn verið
er ekki líklegt að hún hafi verið
nefnd lækur. í sögu Gunnars Keldu-
núpsfífls, sem að vísu er tilbúningur
einn, en svo er að sjá sem höfundur
hafi verið staðháttum nokkuð kunn-
ugur, er getið um kornu kaupskips í
Skaftárós. í því sambandi er athyglis-
verð setning í sögunni, en Iiún er
þessi: ,,engi kom í sandinn til að
kaupa við þá“. Orðatiltækið að „koma
í“ eða „fara í sandinn" var almennt
notað á þessum slóðum a.m.k. fram
til ];ess að hætt var að flytja vörur
sjóleiðis austur með söndunum og
skipa upp við Skaftárós og Hvalsíki.
Af klausunni í sögunni sýnist mega
ráða, að sandar voru við Skaftárós á
þeim tíma og ekki höfn fremur en
nú. Ég get hvorki fundið rök fyrir
eða líkur til þess að sjór hafi náð
upp að Landbrotshrauninu á sögu-
legum tírna, því síður sem sterk rök,
að ekki segja sannanir, eru fyrir því
að land hafi sigið og það all verulega
frá jreim tíma er svo átti að vera.
Þar sem Grenlækur fellur úr hraun-
inu vestan við Seglbúðir er og mikill
og fagur farvegur. Er sýnilegt að þar
hefur fyrrum mikið vatn runnið.
Tröllshylur er lítið eitt vestar. Að hon-
um liggja stórir farvegir með merki
eftir flúðir og fossa (12. mynd). Mest-
ur þeirra hefur sá foss verið, sem féll
í og myndaði Tröllshyl sjálfan. Frá
hylnum liggur svo djúpur farvegur
yfir í núverandi farveg Grenlæks.
Horfið hefur vatnið úr jiessum far-
vegum áður en gosið varð 1362 í Ör-
æfajökli, því öskulagið er óhreyft í
þeim. Greinilegt er að leirur og kvísl-
ar hafa verið víðs vegar um hraunið
norður og vestur af Seglbúðum en
fastir farvegir aðallega úti við hraun-
röndina eins og áður liefur verið drep-
ið á. Einn slíkur farvegur er milli
Þykkvabæjar og Seglbúða og liann
ekki lítill. Vestur af Ytra Hrauni eru
og miklir farvegir. Hefur það vatn
sumt runnið þar sem nú Sýrlækur og
Jónskvísl (Hraunsá) renna en sumt
norður í farveginn við Grenlæk og í
Tröllshyl.
Af því sent hér að framan hefur
verið dregið fram er ljóst að fjölmarg-
ar árkvíslar hafa um langan aldur
legið víðs vegar um það svæði, sem nú
heitir Landbrot. Ekki sýnist ólíklegt
að einmitt af því sé nafnið dregið,
226