Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 15
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Regnskógar
hitabeltisins
INNGANGUR
í þessari grein er leitast við að gefa
lesendum nokkra hugmynd um regn-
skóga hitabeltisins sem fyrir flestum
eru framandi og fjarlægur heimur. Af
þeirri mynd sem hér verður dregin
upp, ætti að vera ljóst að regnskógar
eru um margt sérstæðir og ólíkir öðr-
um vistkerfum. t>að má færa rök fyrir
því að regnskógarnir séu dýrmætustu
fjársjóðir jarðar og jarðarbúa. Peir eru
líklega mikilvægari lífríki jarðar en
flest önnur vistkerfi vegna þess hve
tegundaauðugir þeir eru, en talið er
að a.m.k. helmingur allra tegunda líf-
vera lifi í skógum hitabeltisins. Nú er
einnig vitað að þeir hafa veruleg og
víðtæk áhrif á loftslag og vatnsbúskap.
Hagnýtt gildi regnskóga fyrir jarðar-
búa er gífurlegt. Um 400 milljónir
manna hafa af þeim alla sína lífsbjörg,
frá þeim kemur stærsti hluti þess
harðviðar sem við notum svo og fjöl-
margar nytjaplöntur. í plöntum regn-
skóganna er að finna ótal efni, miklu
fleiri og fjölbreyttari að gerð en í
plöntum annars staðar, efni sem farið
er að nýta í auknum mæli sem lyf og
til alls kyns annarra nota, t.d. í iðn-
aði.
Mjög hratt er nú gengið á regn-
skóga og líklega verða nær eingöngu
eftir einangraðar leifar þeirra þegar
kemur fram yfir næstu aldamót.
Helstu ástæður eyðingarinnar verða
raktar og að lokum bent á þær afdrifa-
ríku afleiðingar sem útrýming regn-
skóga hefði í för með sér.
ÚTBREIÐSLA FYRR OG NÚ
Regnskógar eða sírakir hitabeltis-
skógar myndast þar sem meðalárshiti
er 24 °C eða hærri og úrkoma er mikil
og stöðug (meiri en 4000 mm á ári og
fer sjaldan undir 100 mm á mánuði,
sjá Myers 1980). Loftraki er ævinlega
hár, t.d. að meðaltali um 80% í Singa-
pore (Richards 1952). Árstíðabundnar
loftslagssveiflur eru hverfandi og hiti
og úrkoma jöfn allt árið. Frost koma
yfirleitt aldrei.
Sírakir hitabeltisskógar mynda
grænan borða um miðju jarðar (1.
mynd) og þekja um 6-7% af þurrlend-
isyfirborði heims. Þeir ná um 10° til
norðurs og suðurs út frá miðbaug en
teygja sig lengra á nokkrum stöðum,
lengst 26° til norðurs inn í Suður-Kína
að hlíðum Himalaya (Whitmore
1984). Regnskógar finnast í öllum
heimsálfum sem liggja að miðbaug;
Asíu, Ástralíu, Afríku og Ameríku.
F>ó eru um 80% þeirra innan landa-
inæra aðeins 9 ríkja: Brasilíu, Bólivíu,
Kólumbíu, Perú og Venesúela í Suð-
ur-Ameríku, Gabon og Zaire í Afríku
og Malasíu og Indónesíu í Asíu
(Myers 1980). Skógar Suður-Ameríku
Náttúrufræöingurinn 59 (1), bls. 9-37, 1989.
9