Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 49
BREIDD SVÆÐIS SEM
VERÐUR FYRIR TOGSTREITU (u)
3. mynd. Lóðrétt ílöng kvikuþró, albráðin efst. Vídd þess beltis sem verður fyrir tog-
streitu er u, hálfur rekhraðinn er v/2. Youngs stuðull (E) vex með dýpi og er ellefufalt
hærri við botn skorpu en við topp, en allt að tífalt hærri við topp grunnstæðs hólfs (ekki
sýnt) en við topp þróar. Gangar sem ekki ná yfirborði eru hrein innskot, hinir eru
hraungjafar. Partially molten (with a totally molten upper part) magma reservoir (þró) of
high aspect ratio. Width of zone that undergoes tensile strain as a result ofdivergent plate
movements is u, half spreading rate is v/2. Young’s modulus (E) increases with depth and
may be eleven times higher at the bottom of the crust than at its surface. The 4 dikes that
do not reach to the surface are pure intrusions, i.e., non-feeders.
þess svæðis umhverfis þróna sem
verður fyrir togstreitu við plötuhnik
(3. mynd). Stuðull togspennumögnun-
ar er hér hlutfall togspennu næst þró
(eða hólfi) og þeirrar (afstæðu) tog-
spennu sem byggist upp á plötuskilun-
um. Þar gildir að því ílengri lóðrétt
sem þró er þeim mun hærri er þessi
stuðull og því meiri verður mögnun
togspennunnar næst þrónni.
Jafna (2) sýnir að tíðni gangainn-
skota upp úr þró er, að öðru jöfnu,
meiri þar sem er hár Youngs stuðull,
mikill rekhraði, eða mikil mögnun
togspennu. Innskotatíðni er hins veg-
ar minni þar sem togstyrkur þaks er
hár eða þar sem það svæði sem verður
fyrir togstreitu er óvenju breitt.
INNSKOTATÍÐNI HÓLFA
Með innskotatíðni hólfs er hér átt
við tíðni kvikuhlaupa úr hólfi, og
skiptir þá engu hvort kvikan í tilteknu
hlaupi storknar öll neðanjarðar sem
gangur eða skágangur eða nær að
hluta til yfirborðs í eldgosi. Lítum á
einfaldaða mynd af sambandi kviku-
þróar og kvikuhólfs (2. mynd).
ímyndum okkur fyrst að innskotatíðni
hólfs sé óháð innskotatíðni þróar og
43