Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 53

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 53
GOSTÍÐNI Á ÍSLANDI Langtíma gostíðni Með langtíma gostíðni er hér átt við tíðni eldgosa á tímabili sem spannar tugi þúsunda ára eða meira, en með skammtíma gostíðni er átt við styttri tímabil, frá árþúsundum niður í nokk- ur ár. Til samanburðar má nefna að áætlaður líftími flestra megineld- stöðva hér á landi er 0,3-1,0 milljón ára (Kristján Sæmundsson 1979), en þær langlífustu eru taldar lifa í yfir 2 m.á. (Haukur Jóhannesson 1975). Mörk langtíma og skammtíma gos- tíðni eru þannig valin að tiltölulega skammvinnar breytingar í gostíðni eldstöðvar, svo sem vegna tímabund- innar breytingar á lögun þess hólfs eða þeirrar þróar sem veitir eldstöð- inni kviku, ættu að jafnast út á tugum árþúsunda, þannig að einungis rek- hraðinn, í tengslum við Youngs stuð- ul, ákvarði langtíma meðalgostíðni eldstöðvar. Samkvæmt þessari skipt- ingu telst tíðni gosa úr eldstöð á nú- tíma (síðustu 10 þúsund árin) vera skammtíma gostíðni, einkum þegar haft er í huga að rekhraði um mörg eldstöðvakerfi hér á landi er verulega minni en heildarrekhraði viðkomandi rekbeltis. Bæði er að á Suðurlandi er gosbeltið tvískipt, og hvort belti fær því einungis hluta af heildarrekinu, og svo hitt að sums staðar eru eldstöð- vakerfi að hluta til eða alveg samsíða og hvert kerfi fær þá aðeins hluta af heildarreki innan viðkomandi beltis. Með samanburði á Youngs stuðli efst og neðst í skorpunni (Ágúst Guð- mundsson 1988), og samsvarandi hraða í minnkun þrýstispennu, má reikna með að á æviskeiði eldstöðva- kerfis nái aðeins um einn af hverjum tíu göngum sem kvikuþró sendir frá sér yfirborði sem gossprunga. Svipað hlutfall ganga ætti að ná yfirborði á tugum árþúsunda, þannig að langtíma gostíðni ætti að vera um 10% af lang- tíma innskotatíðni úr þrónni. Þar sem innskotatíðni hólfs stjórnast af inn- skotatíðni þróar sem veitir því kviku, má búast við að langtíma gostíðni megineldstöðvar sem fær kviku sína úr hólfi sé minnst 10% af innskota- tíðni þróarinnar. Allt að nokkrir tugir kvikuhlaupa geta orðið úr hólfi við eitt kvikuflæði úr þrónni sem veitir því kviku. Að auki er stefna margra skáganga allt önnur en stefna viðkom- andi plötuskila. Þess vegna getur lang- tíma gostíðni sumra megineldstöðva orðið verulega hærri en 10% af inn- skotatíðni þróar. Út frá jöfnu (2) og tölulegum gild- um fyrir Youngs stuðul, rekhraða, og togstyrk (Ágúst Guðmundsson 1988), og þeirri niðurstöðu að um 10% ganga nái yfirborði, má meta langtíma gos- tíðni innan rekbeltis með sæmilegri nákvæmni. Á 5. mynd er sýndur fræðilegur fjöldi ganga sem nær yfir- borði sem gossprungur í eldstöðva- kerfi á hverjum 10 þúsund árum. Strangt til tekið ætti líka að taka tillit til lengdar hverrar gossprungu, því stærð þess svæðis þar sem gossprunga breytir sprennusviði tímabundið ræðst af lengd hennar og reyndar líka af yf- irþrýstingi kvikunnar í sprungunni. Það er þó ekki víst að þessi þáttur sé mjög áhrifamikill, því líklega eru gosgangar mun lengri neðan við yfir- borðið, og ná ef til vill yfir stærstan hluta af lengd þróar í neðri hluta skorpunnar. Það þýðir að hver gangur léttir spennu af stærstum hluta tiltek- ins eldstöðvakerfis, en staðsetning samsvarandi gossprungu á yfirborði er breytileg. Stuðull spennumögnunar hefur annars vegar verið talinn 1,0, þar sem engin mögnun verður, og hins vegar 3,0, sem gildir fyrir þró með þver- skurð sem er hringlaga í lóðréttum 47

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.