Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 6
2. mynd. Leiðangursmenn á Lambatungnajökli hinn 5. okt. 1985 á leið úr Skyndidal.
Jarðbiksfundarstaðurinn er merktur með ör. Members of the expedition on Oct. 5, 1985
on the way back from Skyndidalur. The asphalt locality is indicated with an arrow.
(Ljósm. photo Guðmundur O. Friðleifsson).
meginjöklinum niður á jökulársand-
ana framanvið Lambatungnajökul, er
tertíer að aldri, 3-6 milljón ára gamall.
Megineldstöðvarnar í Kollumúla og
Geitafelli setja svip sinn á tertíera
bergið, því marglitt líparít úr báðum
prýðir fjailasýn hvert sem litið er,
ásamt mörg hundruð metra þykkum
syrpum úr dökkum basaltlögum,
millilögum og grænleitu móbergi.
Jarðlagahalli er víða mikill, allt upp í
30-40° til norðvesturs. Mergð berg-
ganga og lítilla innskota af ýmsu tagi
er á svæðinu öllu. Báðar eldstöðvarn-
ar eru rofnar djúpt niður og má þar
sjá stóra innskotshleifa úr gabbró og
granófýr. Auk stóru mislægjanna sem
þegar er getið, milli kvarteru og tertí-
eru bergmyndananna, sjást nokkur
smærri mislægi innan tertíera jarð-
lagastaflans sjálfs. Er þar bæði um
hallamislægi að ræða, og svo greini-
lega roffleti, sem ásamt jökulbergi
sýnir, að staðbundnir jöklar voru til
staðar fyrir u.þ.b. 5 milljónum ára,
eða 2 milljónum ára áður en hin eig-
inlega ísöld er talin hefjast á íslandi.
Rofmislægi ofan á móbergi sést m.a.
rétt neðan við fundarstað jarðbiksins
neðst í Lambatungnatindi.
LAMBATUNGNATINDUR
Hér skal vikið nánar að næsta um-
hverfi fundarstaðarins neðst í Lamba-
tungnatindi. Velta má því fyrir sér,
hvort eitthvað í umhverfinu skýri jarð-
biksfundinn öðru fremur. Fundarstað-
urinn er við jökulsporð (2. mynd) og
má heita að hann sé nýkominn undan
jökli. Á 3. mynd er sýnd hopunarsaga
Lambatungnajökuls frá 1945 til 1982,
ásamt fundarstað jarðbiksins, og má
glögglega sjá að staðurinn var undir
jökli árið 1945. Eftir að jökullinn hop-
ar standa brattir bergveggir berskjald-
aðir og hrun úr þeim er í fyrstu tíðara
en gengur og gerist í fjalllendi. Veðr-
un, hvort heldur er af völdum sól-
172