Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 38

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 38
15. mynd. Séð upp eftir einu af giljum þeim í Sakura-jima þar sem rofstjórnarbúnaði (sabo) he- fur verið komið fyrir. I þessu til- viki er um að ræða steypt gólf í farveginum svo vatnið geti ekki grafið sig niður og losað um jarð- veginn. Erosion control in one of the stream channels on tlie slopes of Sakura-jima. Ljósm. photo Páll Imsland. veginn. Lokafarvegurinn er í flestum tilfellum flatlendiskafli árinnar eftir að hún er hætt að safna í sig hliðarám. Þar er hætta á því að farvegurinn yfir- fyllist og því hefur hann víða verið grafinn upp, dýpkaður og breikkaður til þess að hann geti flutt meira fram til sjávar á stuttum tíma, því hlaupin koma snöggt og fara hratt. Til þess að framburðurinn hindri ekki rennsli næsta hlaups þá þarf gjarnan að hreinsa lokafarveginn eftir hvert hlaup. Einnig þarf að opna leiðina út til sjávarins vel. Því má þarna sjá sér- hannaðar jarðýtur ösla um í sjónum úti fyrir árkjöftunum og krana og gröfur hagræða efninu sem fram hefur borist og búa þannig í haginn fyrir næsta hlaup. Nojiri-áin rennur í gegn um eitt stærsta þorpið á Sakura-jima. Hún er eitt mesta skaðræðið í þessu sam- bandi. í henni hafa verið byggðar 14 stíflur og uppistöður. í henni eru 1,3 km langir skurðir og samtals 360 m Iangir stýrigarðar. Hún er 5,9 km löng en vatnasvið hennar er einungis 2,73 km2. Meðaltalshalli í farvegi hennar er 1:5,4. í hana koma að meðaltali 21 hlaup á ári. Til þess að koma eðju- hlaupi af stað þarf að rigna meira en 5 mm á 10 mínútum. Straumhraðinn í hlaupi í henni 3. júlí 1981 mældist 20 m/sek eða 72 km/klst. Hlaupið er þá aðeins um 5 mínútur frá toppi fjallsins og út í sjó. Heildarrúmmál efnis sem hún ber fram í hlaupum getur farið upp í 300.000 m3 en mun vera nálægt 204

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.