Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 42
18. mynd. Einkunnarorð og tákn ráðstefnunnar voru greypt í þessa skreytingu við innganginn að Alþýðuhöllinni, á ensku öðru meginn en japönsku liinu megin. The theme and emblem of the conference were dispayed at the entrance to the City Hall. Ljósm. photo Páll Imsland. svæðum og myndunar gasbóla í berg- kviku á leið til yfirborðs, frá áhrifum eldgosa á flugöryggi til orkulosunar í eldgosum, frá líkani af sprengingum í eldgosum af vulkanian gerð til áhrifa eldgosa á heilsu manna, frá aðferðum og tækni við að hafa áhrif á hraun- rennsli til áreksra á milli vísinda- manna, stjórnsýslumanna, frétta- manna og almennings á hættustund- um og þannig má lengi telja. Eftir þingið var erlendum þátttak- endum boðið upp á að fara skoðunar- ferðir um eldfjallasvæði og eldfjalla- stöðvar í Japan (19.mynd). Skipulagð- ar voru þrjár mismunandi slíkar kynnisferðir þó þinghaldið færi fram á regntímanum. í lok þingsins samþykkti þingheim- ur yfirlýsingu til heimsbyggðarinnar, Kagoshima-yfirlýsinguna. Hún fer hér á eftir í þýðingu úr ensku, en í þinglok lá hún fyrir bæði á ensku og japönsku. Vonandi verður yfirlýsing þessi vendi- punktur í afstöðu opinberra aðila um heim allan til hættunnar af völdum náttúruaflanna. Á því er full þörf og hún ætti að vera sérlega ljós nú, því á undanförnum árum hafa víða orðið miklar og mannskæðar náttúruham- farir. Af þeim hafa sérfræðingar lært mikið og þá vitneskju má víða nota í varnar- og viðbúnaðarskyni. Samein- uðu þjóðirnar efna til áratugs, 1990- 2000, sem er helgaður átaki til fækk- unar stórslysa af völdum náttúruham- fara og til mildunar á áhrifum þeirra sem eru óumflýjanleg. Til þess að 208

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.