Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 42
18. mynd. Einkunnarorð og tákn
ráðstefnunnar voru greypt í
þessa skreytingu við innganginn
að Alþýðuhöllinni, á ensku öðru
meginn en japönsku liinu megin.
The theme and emblem of the
conference were dispayed at the
entrance to the City Hall. Ljósm.
photo Páll Imsland.
svæðum og myndunar gasbóla í berg-
kviku á leið til yfirborðs, frá áhrifum
eldgosa á flugöryggi til orkulosunar í
eldgosum, frá líkani af sprengingum í
eldgosum af vulkanian gerð til áhrifa
eldgosa á heilsu manna, frá aðferðum
og tækni við að hafa áhrif á hraun-
rennsli til áreksra á milli vísinda-
manna, stjórnsýslumanna, frétta-
manna og almennings á hættustund-
um og þannig má lengi telja.
Eftir þingið var erlendum þátttak-
endum boðið upp á að fara skoðunar-
ferðir um eldfjallasvæði og eldfjalla-
stöðvar í Japan (19.mynd). Skipulagð-
ar voru þrjár mismunandi slíkar
kynnisferðir þó þinghaldið færi fram á
regntímanum.
í lok þingsins samþykkti þingheim-
ur yfirlýsingu til heimsbyggðarinnar,
Kagoshima-yfirlýsinguna. Hún fer hér
á eftir í þýðingu úr ensku, en í þinglok
lá hún fyrir bæði á ensku og japönsku.
Vonandi verður yfirlýsing þessi vendi-
punktur í afstöðu opinberra aðila um
heim allan til hættunnar af völdum
náttúruaflanna. Á því er full þörf og
hún ætti að vera sérlega ljós nú, því á
undanförnum árum hafa víða orðið
miklar og mannskæðar náttúruham-
farir. Af þeim hafa sérfræðingar lært
mikið og þá vitneskju má víða nota í
varnar- og viðbúnaðarskyni. Samein-
uðu þjóðirnar efna til áratugs, 1990-
2000, sem er helgaður átaki til fækk-
unar stórslysa af völdum náttúruham-
fara og til mildunar á áhrifum þeirra
sem eru óumflýjanleg. Til þess að
208