Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 48
GLIÐNUN UNDIR GLÓANDI HRAUNI
Fyrsta Kröflugosið, 20. des. 1975, í landrekshrinunni, sem staðið hefur yfir í
Þingeyjarsýslum síðan 1975, stóð mjög stutt, það byrjaði einhvern tíma á milli
kl. 10 og 11, en hraunrennsli hófst kl. 11.08 og stóð í u.þ.b. 15 mín. Eftir það
gaus gufu, vatni og leðju fram til kvölds. Gosið var á 2 km langri slitróttri
sprungu. Hraunið þakti um 0,036 km2 og var um 300.000 m3.
A meðfylgjandi mynd má glöggt sjá að gliðnun og rifnun jarðskorpunnar í
sjálfu yfirborðinu hélt áfram á meðan á gosinu stóð og eftir að því lauk. Myndin
er tekin strax eftir gosið á hraununum rétt norðan við Hóf. Hún sýnir að þegar
sprungan opnaðist undir hrauninu var yfirborð hraunflákans storknað en ekki
fullstíft, en undir yfirborðinu var ennþá glóandi kvika, sem dróst ofan í sprung-
una þegar hún opnaðist. Ljósm. Ævar Jóhannesson.
Páll Imsland.
Náttúrufræðingurinn 59 (4), bls. 214, 1990.
214