Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 6
1. mynd. Djúpu rannsóknaholurnar á
Grœnlandsjökli. Summit er á hábungu
jökulsins og frá þeim stað er jökulskrið til
allra átta.
prófa hinn nýja bor var við Dye 3, radarstöð
Bandaríkjamanna á Suðaustur-Grænlandi.
Valið réðst af því að þetta var ódýrasti
kosturinn til að prófa borinn, þar sem
kostnaður vegna flugs og við að koma upp
bækistöð var mun minni en ella hefði orðið.
Borinn reyndist með afbrigðum vel og upp
náðist 2038 m langur ískjami. Sjálfur bor-
staðurinn var hins vegar ekki sá ákjósan-
legasti. Á Suður-Grænlandi hlýnar það mik-
ið á sumrin að bráðnun verður á yfírborði
jökulsins. Vatnið sem til verður við bráðn-
unina dregur í sig efni úr andrúmsloftinu
þannig að efnainnihald þess breytist áður
en það frýs á ný. Að auki hefur komið í ljós
að kjaminn geymir einungis samfelldar
upplýsingar um siðustu 45.000 árin, vegna
þess að lagskiptingin í neðstu 120 m íssins
hafði raskast vegna skriðs í jöklinum.
Úrvinnsla gagna tókst þó með ágætum og
nýjar og öflugar mæliaðferðir vom þróaðar.
SUMMIT
Eftir borunina við Dye 3 varð það draumur
margra að bora í hájökul Grænlands. Þar
verður engin bráðnun á sumrin og hreyfíng
á ísnum er lítil sem engin og því von um að
ná upp kjarna með algerlega óraskaða lag-
skiptingu. Draumurinn varð að veruleika
sumarið 1992 þegar borun lauk á rúmlega 3
km löngum kjama á Summit, en svo nefnist
allstórt svæði á hábungu Grænlandsjökuls.
Borstaðurinn á Summit (72°34’N
37°37’V) er í 3238 m hæð yfirsjóogþar
er lítil sem engin lárétt hreyfing talin vera
á ísnum. Þar fergist ísinn lóðrétt og þar
eru því mestir möguleikar á að ná upp elsta
ís Grænlands. Meðalárshiti á Summit er
-32°C, sumarhiti er nær alltaf undir frost-
marki og sumarbráðnun því ekki til staðar.
GRIP-verkefnið
Verkefnið um djúpbomn á Summit hefur
verið kallað GRIP (Greenland Icecore Proj-
ect) og er samvinnuverkefni átta Evrópu-
ríkja en þau eru Belgía, Danmörk, Bretland,
Frakkland, Þýskaland, Ítalía og Sviss auk
íslands. Þann 12. júlí 1992 lauk bomninni
og var kjaminn þá orðinn 3028,8 m langur.
í neðstu 6 metrum kjarnans er ísinn mjög
leirugur (3. mynd) og litlar steinvölur em
einnig til staðar. Að öðm leyti em gæði
kjarnans frábær, nema á 800 til 1300 m dýpi
en þar brotnaði hann mjög upp vegna innri
spennu. Innan GRIP-hópsins er nú verið að
rannsaka ýmsa veðurfarsháða þætti í
ískjamanum.
■ SAMSÆTUR
Vatn, og þar með ís, er gert úr frumefnunum
vetni og súrefni (H20). Langalgengasti
atómmassi súrefnis er 16 (l60) enjafnframt
er til örlítið af súrefni með atómmassann 17
og 18 (l70, l80). Eins getur vetni verið mis-
þungt. Langalgengasta atómþyngd þess er
1 ('H) en þyngra vetni er einnig til, bæði
tvívetni (2H), sem hefur atómmassann 2, og
84