Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1994, Síða 13

Náttúrufræðingurinn - 1994, Síða 13
svipað og GRIP-kjaminn. Eins og sést á 10. mynd D eru breytingar á samsætugildum sem fimdist hafa við mælingar ískjarna ífá Grænlandi ekki eins greinilegar í sniði Vostok-kjamans. Sennilegasta skýringin er sú að veðurfarsbreytingarnar séu tengdar hröðum breytingum á sjávar- og lofthjúps- straumum á Norður-Atlantshafssvæðinu en breiðist þaðan út um allan heim. Kalsítútfellingar frá Devils Hole OG DJÚPSJÁVARGÖGN Á 10. mynd A er sýnt samsætusnið kalsít- útfellinga frá Devils Hole í Nevada, Banda- ríkjunum, og kemur síðasta hlýskeið (eem=5e) þar einkar vel fram. Sama má segja um samsætusnið sem byggt er á djúpsjávargögnum (SPECMAP) og sýnt er á 10. mynd B. Samkvæmt 10. mynd sýna samsætusnið ískjamanna tveggja (Summit og Vostok) og kalsítsins frá Devils Hole að síðasta hlýskeið hefur varað töluvert lengur en metið hefur verið út frá djúpsjávargögn- um (SPECMAP), en úr þeim gögnum má lesa að á síðasta hlýskeiði hafi jöklar jarðarinnar verið í lágmarki í ein 10.000 ár. Ef hins vegar síðasta hlýskeið er skilgreint sem tíminn frá því fyrst greinast hærri sam- sætugildi en á nútíma og þar til svo há samsætugildi hætta að greinast hefur þetta tímabil varað í nær 20.000 ár, eða frá 133.000 til 114.000 ára samkvæmt GRIP- tímakvarðanum. ÓSAMRÆMI í RANNSÓKNUM Á FORNVEÐURFARI Eins og áður segir sýnir 10. mynd C (og reyndar fleiri GRlP-mælingar) að 5e-tíma- bilið skeri sig úr sem hlýskeið sem brotið er upp tvisvar sinnum af köldum tímabilum, ámóta köldum og hlýju kaflamir innan síð- asta jökulskeiðs. Köldu tímabilin, sem merkt eru 5e2 og 5e4 á 10. mynd C, hafa líklega varað í 2000 og 6000 ár og valda því að hlýskeiðið 5e skiptist í þrjú hlý tímabil fyrir utan stutta helkalda kaflann í lok 5e-skeiðsins sem áður er greint frá. Úr gögnum frá Camp Century- og Devon Is- land-ískjömunum hafði áður sést mjög kalt og stutt tímabil innan 5e og samkvæmt nýja tímakvarðanum gæti það tímabil fallið saman við eitt af köldu tímabilunum sem sýnd em á 10. mynd C. Koldíoxíðmælingar á Vostok-ískjamanum frá Suðurskautsland- inu benda einnig til að veðurfar á 5e- tímabilinu hafí verið óstöðugt. Hins vegar benda frjókomagreiningar og rannsóknir á djúpsjávarsniðum til þess að eem-tímabilið hafi verið hlýtt og stöðugt (10. mynd B). Þetta misræmi kann að eiga sér eðlilegar skýringar. Veðurfarsbreytingar em venju- legast stærri í sniðum nær pólum en miðbaug. Þess vegna er ekki ólíklegt að kólnunin i Vestur-Evrópu sem samsvarar lággildunum á 5e4 (10. mynd C) hafi ekki verið nægilega mikil til að valda vem- legum breytingum á gróðurþekju og þar af leiðandi í frjókornasniðum. Samsætusnið djúpsjávarsets lýsa fyrst og fremst rúmmáli íss á meginlöndum og breytast því ekki endilega með hitastigi á þeim tíma þegar norðursvæði meginlandanna em íslaus. Að auki er upplausn í djúpsjávarrannsóknum takmörkuð vegna hræringa sem eiga sér 11. mynd. Frá boruninni við Dye 3 1979. Þessi bor var einnig notaður á Summit 1992 en nokkuð endurbættur. 91
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.