Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 19
„Dínósárarnir
ERU KOMNIR“
Vangaveltur um flokkun dýra
FYRR OG SÍÐAR
ÖRNÓLFUR THORLACIUS
Frá örófi alda hafa menn flokkað dýr
og plöntur en forsendurnar eru sífellt
að breytast. Þegarþess er kostur leitast
líffrœðingar nú við að taka mið af
þróunarskyldleika lífveranna við grein-
ingu í œttkvíslir, œttir, ættbálka og
aðrar flokkunarheildir.
ijórðu öld fyrir Krists burð
skipaði Aristóteles dýrunum í
kerfi, og lærisveinn hans Þeó-
frastos flokkaði plönturnar eftir
sömu meginreglum. Kerfí þeirra dugði
þolanlega út miðaldir á þann lífheim sem
Evrópumenn þekktu. En eftir landafundina
bárust náttúrufræðingum Gamla heimsins
ókjör af torkennilegum dýrum og plöntum
sem alls ekki rúmuðust öll innan kerfísins.
Sænskur náttúrufræðingur, Carl von
Linné (1707-1778), eða Carolus Linnaeus
eins og hann nefndi sig á latínu (1. mynd),
átti öðrum mönnum meiri þátt í að greiða
úr þeirri óreiðu sem upp var komin. Grunn-
einingin í kerfi Linnés var tegundin, og
bera allar þekktar lifandi og aldauða teg-
undir fræðiheiti, samsett af tveimur nöfn-
um á latínu eða með latneskum endingum.
Ömólfur Thorlacius (f. 1931) lauk fil.kand.-prófi í
líffræði og efnafræði frá Háskólanum í Lundi í Sví-
þjóð 1958. Hann var kennari við Menntaskólann í
Reykjavík 1960-1967, Menntaskólann við Harnra-
hlíð 1967-1980 og hefur verið rektor þess skóla frá
1980. Samhliða kennslustörfum hefur Örnólfur samið
kennslubækur og hann hafði um árabil umsjón með
fræðsluþáttum um náttúrufræði i útvarpi og sjónvarpi.
Hann var um skeið ritstjóri Náttúmfræðingsins.
1. mynd. Tvinafnakerfi Carls von Linné
var i fyrstu einungis notað um plöntur
enda var Linné fyrst og fremst grasa-
frœðingur. Hann reit snemma á œvi sinni
flóru Lapplands og hér sést hann i þjóð-
búningi Sama (Wendt 1953).
Náttúrufræðingurinn 64 (2), bls. 97-106, 1994.
97