Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 33

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 33
Eldreinin mikla SKAFTÁRELDAR FYRR OG SÍÐAR JÓN JÓNSSON Þegar flett er gegnum Islandssöguna kemur fljótt í Ijós að allt frá upphafi hyggðar hafa margsinnis orðið hér stórkostlegar náttúruhamfarir sem stundum hafa lagt heilar byggðir í auðn og valdið landsmönnum ærnum bú- sifum. Erfitt er að ímynda sér þœr hrikalegu hamfarir sem dundu yfir Vestur-Skaftfellinga og reyndar lands- menn alla í Skaftáreldum undir lok 18. aldar, þegar 12 km3 af hrauni fiæddu upp úr Lakagígum, en það er u.þ.b. sex- tugfalt hraunmagn Iíeimaeyjargossins 1973. Nú er orðið algengt að ferða- menn heimsœki gosstöðvarnar en lítið hefur farið jyrir umfiöllun fræðimanna um þessa einstœðu gígaröð. að hefur jafnan verið málvenja í eldsveitunum að tala um Skaft- árelda í fleirtölu, enda þótt átt sé við gos það rnikla eitt sem varð á afréttum ofan Síðubyggðar 1783-1784 og frægt er senr mesta hraungos á sögulegum Jón Jónsson (f. 1910) lauk fil.lic.-prófi í jarðfræði frá Uppsalaháskóla árið 1958. Hann starfaði hjá Raforku- málaskrifstofunni og síðar Orkustofnun frá 1958 til 1980 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þar fékkst Jón einkum við leit að köldu og heitu vatni og síðast við gerð jarðfræðikorts af Reykjancsskaga. Á árunum 1969-1974 starfaði Jón í Mið-Ameríku á vegum Sameinuðu þjóðanna og fór síðar fjölda ferða sem ráðgjafi á þeirra vegum, einkum til Afríkulanda. hftir að hann lét af störfum helur hann haldið áfram rannsóknum, m.a. við Eyjafjallajökul og í nágrenni við æskuslóðirnar í Vestur-Skaftafellssýslu. Náttúrufræðingurinn 64 (2), bls. 111-130, 1994. tíma. Enginn vissi að þetta mikla gos var hið þriðja sem orðið hefur á sömu gosrein frá því að ísaldarjökullinn síðasti hvarf af svæðinu. Þó eru nú liðin 200 ár frá því að Sveinn Pálsson (1945 bls. 305) lét að því liggja að byggðarmönnum hafi verið kunn- ugt um eldri eldstöðvar á þessum slóðum og kunnað að nafngreina þær. Síðar hafa nokkrir, og meðal þeirra þekktir og viðurkenndir vísindamenn á sviði jarð- fræði, bent á þá staðreynd að gosið hafi á þessari sömu sprungurein fyrir Skaftárelda. Að tala um Skaftárelda í fleirtölu er því meira réttmæli en flesta grunar, en það er fyrst nú nýverið að ljóst varð að gosin, sem öll hafa verið stórgos, eru í reynd þrjú, ■ rannsóknir Segja má að rannsóknir á Skaftáreldum haft byrjað árið eftir að gosinu lauk og að það hafi verið með ferð Magnúsar Stephensens (1785) til eldstöðvanna 16- 17. júlí 1784. Við getum því hrósað okkur af því að það var þó íslendingur sem fyrstur kom á vettvang enda þótt sendur væri af danskri stjórn. Næstur kemur Sveinn Pálsson á staðinn og er fyrstur til að komast alveg að eldvörpunum þann 31. júlí 1794, til þess að gera sér grein fyrir út- liti þeirra og einkennum og til að koma þeim á kort, sem því rniður ekki kom fyrir sjónir almennings fyrr en nálgast tók miðja tuttugustu öldina. Síðan taka íslendingar sér heillar aldar frí frá rannsóknum Skaftárelda og það er 111

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.