Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1994, Qupperneq 41

Náttúrufræðingurinn - 1994, Qupperneq 41
gjallgígi í Eldborgaröðum vil ég nefna Rauðöldur og þar með endurvekja hið foma nafn sem til var fyrir Skaftárelda (sbr. Sveinn Pálsson 1945, bls. 305). Þétt röð fremur smárra hraungíga er svo fram að næsta kennileiti, Eldborg, sem hefur þá sérstöðu að í henni er djúp tjöm og frá henni liggja mestu hrauntraðir á ís- landi, Eldborgarfarvegur. Næsta víst er að Eldborg er annar þeirra tveggja staða þar sem eldur sást uppi „allt til þess 14. Januarii 1784“ (Ævisaga, bls. 365). Þetta sást frá Skaftárdal en vel gat hægfara hraunrennsli, t.d. frá Eldborg, haldið lengi áfram eftir að til þess sást úr byggð. Eldborg er eina ömefnið í Vestur- gjánni og aðeins er vitað um eitt í Austur- gjánni, Byrðu. Sitt frá hvoru gosi eru þau. Næst vestan við Eldborg em þrír samfastir geysimiklir hraungígir. Frá þeim liggja eldrásir (hrauntraðir) miklar út í Eld- borgarfarveg og sýnir þar með samtíma- virkni. Þessir gígir ná yfír um 750 m langan kafla. Þama er óvenjulega ljóst hvemig þessir risavöxnu hraungígir liggja gegnum ennþá stærri og eldri gjallgígi. Norðan megin er eldri gígurinn miklu stærri ummáls og margfalt hærri. Hann einn hefur verið sem næst jafnlangur og hraungígimir þrír. Vestan í honum er eftir- farandi að sjá: Ut frá norðurhlið hans gengur nokkuð þykk hrauntunga (5. mynd) sem greinilega er kargahraun. Vikurlög hafa svo mjög jafnað yfir það hraun að nú standa aðeins hæstu nibbur uppúr. Ljóst er að þessi vikur getur ekki annars staðar verið frá kominn en úr gosinu 1783 og sannast með því enn einu sinni aldurs- munurinn. Næstir vestan við þessa gígi eru tveir með þeim stærstu vestan Laka. Þeir eru aðskildir af þunnri brík, sem sitja má á og hafa sinn fótinn í hvomm gíg. Frá þeim stað era um 40 m niður á gígbotn. Hraun- traðir miklar ganga frá honum að norð- austan og mynna út í Eldborgarfarveg. Sunnan megin við eystri gíginn, sem er um 500 m langt gímald, er geysimikil gjall- dyngja sem hraunin austan frá og úr hraun- gígnum sjálfum hafa runnið upp að. Norð- austurgaflinn á eystri gígnum er snar- brattur að utan og þverhníptur að innan- verðu. Hann virðist aðeins að hluta til vera frá Skaftáreldum. Hann gengur svo í sam- band við norðurrima eldri gjallgígsins, sem er miklu flatari og í honum taka við sprangur en flekar milli þeirra hafa sigið inn að hraungígnum væntanlega við að- ganginn 1783. Nokkuð vafasamt er hvort austurhluti næsta gigs hafi yfírleitt verið virkur í Skaftáreldum. Fomlegar hraun- traðir liggja þar út úr honum sunnan meg- in, en inn í þær hefur hrauntunga úr síðasta gosi gengið. Norðurhlið gígsins er öll í stöllum sem boglaga hafa hrapað inn að miðju hans. Utan við hann að norðvestan er gamalt vikurkafíð hraun sem frá honum er komið. Úr vesturenda þessa gígs ganga djúpar hrauntraðir, sem eftir að hafa mynd- að dálitla hrauntjörn mynna út í Eldborgar- farveg. Austurhluti þessa langa gígs virðist ekki hafa verið virkur í síðasta gosi en hraun frá uppvarpinu vestast í honum hefur runnið austur eftir honum og hangir nú sem tunga fram í gamla útfallið og hraun- traðimar frá fyrra gosi, en hraunið austan frá hefúr mnnið inn í þær eins og áður segir. I suðurhlíð þessa gígs, milli gamla og nýja útfallsins, em sérkennilegar rásir, 1-1,7 m djúpar, ekki ólíkar því að vera eftir aurflóð, en um það skal ekkert fullyrt að svo stöddu. Aðeins vestar er gisin dreif af stómm bombum sem auðsjáanlega hafa komið í lokaþætti gossins. Svo er að sjá sem Rauðöldugosið hafí endað með mikilli bombuhrið. Þetta má ráða af því að bomb- urnar, sem sumar em meira en 0,5 m3, liggja ofan á hrauni sem frá sama gíg er komið. Vestan við þessa og vestastur í röð stórra gíga er einn hár, reglulegur og brattur, sá fallegasti í allri Vesturgjá. Hann er ekki myndaður í síðasta gosi en var virkur þá og hraunrennsli úr honum virðist hafa verið til norðausturs, undir yfirborði og loks sameiginlegt með þeim síðast- nefnda eins og áður er sagt. Frá Eldborg og gígunum sem nú hafa verið taldir vestan við hana er kominn sá mikli hraunfláki sem mnnið hefur til suðurs austan við Hnútu, upp að Hnútu- hólma, sem er gervigígasvæði frá fyrra gosi, sem sannast af því að þar eru súr öskulög í jarðvegi, en þau hafa reynst 119
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.