Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 47
10. mynd. Gasrás upp gegnum gosmalardyngjuna á 9. mynd. - Degassing pipe, phreatic
explosion pit in the pyroclastic deposits. Mynd/photo Jón Jónsson.
Upptökin eru greinilega inni í gígnum.
Þetta hygg ég vera ösku- og grjótflóð
myndað sem steypiflóð út frá gosmekki
sem orðið hefur til í rniklum sprengingum,
en gosið orðið í líklega alldjúpu vatni.
Efnið þeytist þá upp en þegar sprengi-
kraftinn þrýtur steypist fyrst grófara efnið
niður og úr verður grjót- og öskuflóð sem
æðir niður gíginn að utanverðu, en nokkuð
fellur til baka ofan í gíginn aftur. Á fyrri
hluta Surtseyjargossins mátti sjá svona
fyrirbæri nánast eftir hverja sprengingu, en
í öllum þeim fjölda mynda sem tekinn var
af þvi gosi hefur mér ekki tekist að fínna
neina sem sýnir þetta vel. Víst er þó að
þetta skeði við flestar þær sprengingar sem
ég horfði á frá „Maríu Júlíu“ í það eina
sinn sem mér auðnaðist að horfa á Surts-
eyjargosið úr rýmilegri fjarlægð. Ljóst er
að þessi umræddi geysistóri gígur hefur
hlaðist hratt upp í þéttum sprengingum og
mikil dyngja fastra gosefna orðið til. Að
sjálfsögðu hefur hitinn verið hár í slíkri
dyngju, en það hefur orðið til þess að gas
og vatnsgufa sprengdu rásir upp gegnum
þessi lög. Sjást þær rásir á gígnum utan-
verðum, þar er hringlaga laut um 30 m í
þvermál og um 6-8 m djúp að áætlað var,
en snjór var á botninum, og önnur minni
rétt við gígbarm (10. mynd). Þama vottar
fyrir hrauntröðum út undan gosmalar-
dyngjunni og því gæti stærri lægðin verið
upp af hraunrás, helli. Ætla má að fleiri
slíkar myndanir geti þama verið, en tími
minn til að leita að slíku var takmarkaður.
Því má svo skjóta hér inn í að grjót- og
öskuflóð með svona gasrásum (degassing
pipes) er til staðar við Leiðólfsfell, en
líklega er það myndað öðmvísi. Bíður það
síðari frásagnar.
Gígasvæði þetta er röskur kílómetri
þvert yfír og við norðurrönd þess em tveir
gígir sem óvíst er hvort eru gos- eða
gervigígir, en hvort heldur er þá er ljóst að
þeir eru gamlir.
Um 250 m fyrir norðan norðurenda þessa
stóra öskugígs rís snarbrattur, mjög reglu-
legur gigur og hinn fegursti í Austurgjánni.
Vestan frá séð hefur þessi gígur svo
ákveðna byrðu- eða kistulögun að ég tel
125