Náttúrufræðingurinn - 1994, Blaðsíða 50
13. mynd. Nyrsta hraunið í Eldborgaröðum frá 1783 (eða yngra) liggur sem biynja á
gömlum öskugíg. Thin lava flow from the eruption of 1783 covering an old ash crater.
Mynd/photo Jón Jónsson.
gígur er meira öskukenndur en hinir.
Gígskálin hefur síðar fyllst af hrauni og
rönd þess sést að sunnan og vestan, en
jökulurð er nú yfír þessu. Hraunið virðist
hafa komið norðan frá. Smávegis móbergs-
myndun er á kafla austan í gígnum. Þar
sem til sést er hraunið aðeins 1-1,5 m
þykkt. Lítið eitt norðar hangir hrauntunga
vestur af þessum gígahrygg og hverfur
undir sandinn fyrir vestan. Þetta er finúfið
hraun og aðeins 0,7-0,9 m þykkt. Sama
hraun virðist það vera sem brynjar ösku-
hrygginn lítið eitt norðar, og sjá má hvar
vatn frá jöklinum hefur rofið skarð í hrygg-
inn alveg niður úr (13. mynd). Hraun þetta
er án efa yngsta gosmyndun Eldborgaraða
hér norður frá og að öllum líkindum frá
Skaftáreldum - eða yngra. Af því sem hér
hefur verið dregið saman má ljóst vera að
veruleg útlitsbreyting hefur orðið á Eld-
borgaröðum frá fyrstu tíð Skaftárelda.
Ekki þykir líklegt að því valdi einhvers-
konar þróun eldvirkni heldur ráði þar
meira um samband kviku og vatns.
■ niðurstöður
1) A nútíma hefur þrisvar gosið á sömu
goslinu í Eldborgaröðum (Lakagígum),
síðast 1783. Gígimir eru í þröngum
sigdal sem var til fyrir síðasta gosið.
2) Fyrsta gosið var „freatískt“ gos sem
orðið hefur í stöðuvötnum, sumum lík-
lega alldjúpum, fljótlega eftir að land
varð jökullaust. Efnið er svört, fremur
fín gosmöl, vikur og aska. Gígir frá
þessu gosi mega heita gróðurlausir.
Grámosi vex ekki á þeim.
3) Annað gos verður fyrir meira en
3800±80 14C-árum og gæti hafa orðið
fyrir 8000 árum. Líklega er það mesta
gos á þessari gosrein. Efnið er gjall,
gosmöl, vikur og hraun. Stærstu gígir í
Eldborgaröðum, mest bungulaga, oft
700-900 m í þvermál. Sigdalurinn
liggur gegnum þá. Hraunkvika gasrík.
Grunnvatnsstaða hefur verið há, mikið
um gervigígi. Hraunrennsli rnikið,
128