Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 60
en nokkrir hirðingjar létust og allmargar
hreindýrahjarðir þeirra brunnu upp í
sprengingunni (Gallant 1994). 1 framhaldi
af slíkum atburðum, en þó sér í lagi vegna
áreksturs SL9 við Júpíter, hefur Geim-
ferðastofnun Bandaríkjanna, fyrir atbeina
Bandaríkjaþings, skipað nefnd sem reyna á
að kortleggja og spá fyrir um slíka árekstra
við jörðina. I nefnd þessari á meðal
annarra sæti Dr. Eugene Shoemaker, einn
af þeim er fúndu halastjömuna Shoe-
maker-Levy 9, halastjömuna sem ekki er
lengur til.
Úrvinnsla mun taka mörg ár
Mörg ár mun taka að vinna úr þeim aragrúa
upplýsinga sem söfnuðust þessa viku í júlí, en
reikna má með að á næstu mánuðum verði
fyrstu niðurstöður mælinganna kynntar í vís-
indatímaritum. Þegar grein þessi er rituð hefur
lítið sem ekkert verið birt og því var höfundi
nokkur vandi á höndum við upplýsingaöflun.
Þess skal því getið að mikið af því sem hér er
tínt til er fengið í gegnum tölvunetið Intemet,
en í gegnum það fór samhæfíng mælinganna
fram að hluta, svo og fyrstu umræður um at-
burðina. Þá setti Geimferðastofnun Banda-
ríkjanna (NASA) upp tölvu sem sá um að
dreifa myndum og upplýsingum um árekstr-
ana jafnóðum og þær bárust. Myndirnar sem
hér birtast voru fengnar á tölvutæku formi i
gegnum netið og sendar á því formi til prent-
smiðju. Án efa hefur Internet mjög flýtt fyrir
dreifingu gagna um atburðina og orðið til þess að
grein um þá birtist nú á íslensku, mun fyrr en
annars hefði orðið.
■ heimildir
Beatty, J.K. & D.H. Levy 1994. Awaiting the
Crash - Part II. Sky & Telescope, júlí 1994.
Chapman, C.R. 1994. Dazzling Demise of a
Comet. Nature 370. 245-246.
Gallant, R.A. 1994. Joumey to Tunguska. Sky
& Telescope, júlí 1994.
Gunnlaugur Björnsson 1994. Halastjarnan
Shoemaker-Levy 9. Náttúrufrœðingurinn 63.
200.
Haraldur Sigurðsson 1993. Halastjömur og
loftsteinar: Oboðnir gestir utan úr geimnum
valda ragnarökum. Náttúrufrœðingurinn 62.
45-62.
Levy, D.H. 1993. Pearls on a String. Sky & Tel-
escope, júní 1993.
Weissman, P. 1994. The Big Fizzle is Coming.
Nature 370. 94.
West, R.M. 1994. Comet Shoemaker-Levy 9
Collides with Jupiter: The Continuation of a
unique experience. ESO Messenger, sept-
ember 1994.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Gunnlaugur Björnsson
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3
107 REYKJAVÍK
138