Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 62

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 62
1. tafla. Tíu tegundir ánamaðka hafa fundist á Islandi og deilast þœr á sjö ættkvíslir. Latneskt heiti íslenskt heiti Aporrectodea caliginosa (Savigny) grááni Aporrectodea longa Ude langáni Aporrectodea rosea (Savigny) rauðáni Dendrobaena octaedra (Savigny) mosaáni Dendrodrilus rubidus (Savigny) svarðáni Eisenia J'etida (Savigny) haugáni Eiseniella tetraedra (Savigny) votáni Lumbricus rubellus Hoffmeister taðáni Lumbricus terrestris Linnaeus stóráni Octolacion cyaneum (Savigny) blááni sem ánamaðkar eru auglýstir í beitu fyrir stangveiðimenn. En þeir eru til fleiri hluta nytsamir og gera miklu meira gagn á annan hátt, einkum með þvi að auka frjósemi jarðvegs. ■ RANNSÓKNIR DARWINS Áður fyrr voru ánamaðkar litnir hornauga og taldir lifa á rótum plantna og vera hinir mestu skaðvaldar. Seint á 18. öld voru menn þó farnir að gera sér grein fyrir að ánamaðkar gerðu eitthvert gagn, en það þurfti náttúrufræð- ing á borð við Charles Darwin til að vekja athygli á mikilvægi ánamaðka. Árið 1881, eftir áratuga rannsóknir, gaf hann út mikið rit um ánamaðka og áhrif þeirra á jarð- veginn, „The formation of vegetable mould through the action of worms“ (Dar- win 1881). Ritið átti stóran þátt í að breyta hugarfari fólks í garð ánamaðka. Darwin var einn brautryðjenda í skrifum um ána- maðka og gerði fyrstur vísindalegar rann- sóknir á tengslum ánamaðka við niðurbrot lífræns efnis og myndun jarðvegs. Má hann því teljast upphafsmaður að jarðvegs- vistfræði. Eftir seinni heimstyrjöldina dofnaði áhugi manna á ánamöðkum er farið var að framleiða ódýran tilbúinn áburð i miklum mæli og stórvirkar ræktunaraðferðir komu til sögunnar. Það er ekki fyrr en á síðustu 20 árum sem áhugi vaknar aftur á þessum mikilvæga dýrahópi. ■ ánamaðkur- HINN DÖKKI MAÐKUR Á sumum erlendum tungumálum draga ánamaðkar nafn sitt af aðstæðum þegar þeirra verður hclst vart. Má þar nefna regn- orma eða „regnorme" á dönsku, daggar- maðka eða „daggmasWá sænsku. Ensku- mælandi þjóðir hafa gefíð þeim nafin af umhverfi þeirra og nefna þá jarðorma eða „earthworms“. Orðið ánamaðkur er sennilega alíslenskt orð. í elstu íslensku heimildinni um ána- maðka, De mirabilis Islandiae eftir Gísla Oddsson 1638, eru nefndir ánumaðkar (Backlund 1949) sem samkvæmt íslenskri orðsiljabók Ásgeirs Blöndals Magnússon- ar (1989) er talin afbökun úr ámumaðkur. Þar kemur einnig fram að orðið ámr þýði dökkleitur og sé skylt orðinu om eða ryð en upphafleg merking sé sennilega ryðbrúnn. Þess má einnig geta að í bókinni Hugtök og heiti í norrænni goðafræði (Simek 1993) kemur fyrir tröllkonuheitið Áma sem þýðir hin dökka. Jónatan Hermannsson (1994, munnleg heimild) hefur bent á að þeir ormar sem menn voru helst í návígi við og þekktu best hafí einkum verið hvítar lirfur maðkaflug- unnar í hræjum og húsflugunnar í mykju. Einnig hafí hvítir ormar er lifðu sem sníkl- ar í búfé og mönnum verið vel þekktir. Ánamaðkar séu hins vegar flestir dökk- lcitir og íslendingar hafi gefið þeim nafn af útliti þeirra. ■ tegundir Ánamaðkar tilheyra fylkingu liðorma (Annelida). Um 3000 tegundir ánamaðka hafa fundist í heiminum og fleiri eiga eflaust eftir að koma í leitirnar. Á íslandi 140

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.