Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 65
4. mynd a)
Kynæxlun ánamaðka fer þannig fram að
tveir maðkar festast saman á neðra borði
búksins þannig að framendarnir vísa hvor i
sína áttina. Maðkarnir skiptast á sæðis-
frumum.
4. mynd b)
Beltið myndar nœringarríkan slímhólk sem
fœrist fram af ánamöðkunum og myndar
kúlulaga egghylki.
Teikn. Hólmfríður Sigurðardóttir.
stjóma innra saltjafnvægi í sama mæli og
til dæmis svarðáni (Lee 1985).
■ ÆXLUN
Ánamaðkar eru tvíkynja sem þýðir að bæði
egg og sæði myndast í hverjum maðki.
Æxlunin fer yfirleitt fram niðri í göngunum
en stóráni æxlast þó á yfirborði jarðvegs að
næturlagi. Þetta gerist með þeim hætti að
tveir maðkar festast saman á neðra borði
búksins þannig að framendamir vísa
hvor í sína áttina (4. mynd a). Beltin
gefa ffá sér slím sem myndar slím-
hólka utan um maðkana. Þegar þeir
hafa skipst á sæðisfrumum losna ána-
maðkarnir hvor frá öðmm. Slímhólk-
amir færast smám saman fram af ána-
möðkunum, egg og aðkomið sæði falla
í hólkana sem lokast, þoma og mynda
kúlulaga egghylki með seigu hýði (4.
mynd b). Litur hylkjanna, stærð og
lögun er misjöfn eftir tegundum. Þau
era yfírleitt gulgræn eða brún. Þau
stærstu era 5-6 mm í þvermál en þau
minnstu 1,5 mm (5. mynd).
Egghylkin liggja i efsta moldar-
laginu. Þroskunartími þeirra fer eftir
hita- og rakastigi. Hér á landi er hann
um það bil 1 ár. Hann er skemmri hjá smáu
tegundunum en þeim stóra og getur farið
niður í nokkrar vikur hjá haugána. Á norð-
lægum slóðum þroskast að jafnaði eitt
frjóvgað egg í hverju egghylki. Ánamaðk-
ar geta framleitt allt að 50 egghylki á ári
en stórar tegundir framleiða yfírleitt færri
egghylki en smáar tegundir. Æxlun og
framleiðsla egghylkja getur farið fram allt
árið ef frost fer ekki djúpt í jörðu, en nær
þó yfírleitt hámarki á vorin og á haustin.
Flestar tegundir ánamaðka fjölga sér með
5. mynd. Egghylki taðána (Lmnbricus rubellus)
til vinstri og gráána (Aporrectodea caliginosa)
til hægri. Þau eru rúmlega 4 mm á lengd. Ljósm.
Hólmfríður Sigurðardóttir.
143