Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 80
öld
tímabil
aldur
(milljónir ára)
nýlífsöld tertíer
miðlífsöld krít
júra
trías
fomlífsöld perm
kol
1 devon 1 1 1 1
v 2
65
144
213
248
286
360
-----125
-161
Yucatán
Mjölnir
10. mynd. Mjölnir myndaðist einhvern tíma á tímabilinu frá því fyrir 161 milljón árum þar
til fyrir 125 milljón árum, þ.e. á síðari hluta júra eða fyrri hluta krítar.
á grunnsævi. Tiltækar ómmyndir af Mjölni
sýna að miklar líkur eru á að fá megi fram
einstaklega nákvæma þrivíða mynd af gerð
hans með frekari mælingum. Slík mynd
gæti hugsanlega fært okkur nær svarinu við
þessum spumingum.
Það sem gerir Mjölni þó sérstaklega
áhugaverðan til frekari rannsókna em
möguleikarnir á að fínna þau efni sem
mynduðust þegar loftsteinninn hrapaði í
setlögin á botni Barentshafs. Auk þess að
staðfesta hvort í raun var um árekstur loft-
steins að ræða og hvenær hann varð, myndi
fundur úrfallslagsins gera kleift að kanna
afleiðingar árekstursins fyrir lífríkið. Ald-
ursgreining á Mjölni, byggð á tengingu óm-
myndanna við nálæg og betur þekkt svæði,
bendir til þess að áreksturinn hafi orðið
fyrir 161-125 milljón ámm (10. mynd).
Sambærilegar setlagasyrpur frá sama tíma
hafa varðveist i Barentshafí og á Svalbarða
og er rannsókn þeirra þegar hafín.
■ tilvitnanir
ALvarez, L.W., W. Alvarez, F. Asaro & H.V.
Michel 1980. Extraterrestrial cause for the
Cretaceous-Tertiary extinction. Science 208.
1095-1108.
Alvarez, W. & F. Asaro 1990. An extraterres-
trial impact. Scientific Amerícan 263, 4. 78-
84.
158