Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 14
1. tafla. Flokkar frumefna eftir uppruna nafnanna.
þýðir gylltur og samkvæmt
því ætti arsen að flokkast
Flokkur nr. Heiti Fjöldi framefna með nöfnum sem tengjast lit og fjallað er um í 7.
flokki.
i Söguleg nöfn 10
2 Nöfn tengd himinhnöttum 8 Meðhöndlun
3 Nöfn tengd goðafræði og hjátrú 9 EINSTAKRA FLOKKA
4 Nöfn tengd málmgrýti 14 Hér á eftir verða frumefni
5 Landfræðileg nöfn tengd málmgrýti 10 einstakra flokka talin upp
6 Landfræðileg nöfn tengd heimkynnum og þau framefni skáletrað
eða vinnustað uppgötvarans 13 sem nánar er fjallað um.
7 Nöfn tengd lit 9 Þessi skáletraðu frumefni
8 Nöfn tengd öðram eiginleikum en lit 8 er einnig að finna í lotu-
9 Sérsniðin nöfn 16 kerfinu á 1. mynd, ásamt
10 Nöfn tengd persónum 6 [+6] viðeigandi flokki.
hefur sltk tillaga hlotið samþykki annarra
fræðimanna en frá því eru þó undan-
tekningar og verður nokkurra þeirra getið
hér á eftir.
Flokkun eins og í 1. töflu er alls ekki
einhlít, bæði geta flokkarnir verið færri
eða fleiri. Mikilvægara er þó að mismun-
andi orðsifjafræðiiegar skýringar geta ver-
ið fyrir hendi sem hafa áhrif á það í hvaða
flokki frumefnið lendir. Sem dæmi um
þetta má taka orðið arsenik, sem gæti átt
uppruna sinn í gríska orðinu arsenikos
sem þýðir karlmaður eða karlmannlegur.
Þessi tengsl við karlmennsku má rekja til
gullgerðarmannanna sem tengdu málma
við kyn; t.d. var arseni blandað í kopar til
að gera hann harðari og sterkari. I sam-
ræmi við þetta hefur frumefnið arsen verið
sett í 3. flokk með nöfnum sem tengjast
hjátrú. Nýrri hugmynd er að orðið arsenik
sé skylt persneska orðinu zarnik sem
■ 1. FLOKKUR
SöGULEC NÖFN
Þau tíu frumefni sem fylla þennan flokk
eru: blý, brennisteinn, gull, járn, kolefni,
kopar, kvikasilfur, platína, silfur og tin.
Úr þessum flokki verður sagt frá hinum
sjö fomu málmum. Sú var tíð að mann-
kynið þekkti sjö málma og sjö himinhnetti
og skipti vikunni í sjö daga. Ekki kemur á
óvart að málmar og vikudagar séu tengdir
himinhnöttunum. Litur var oft notaður til
að tengja ákveðinn himinhnött ákveðnum
málmi: Gull tengdist sólinni, hvítt silfrið
skein eins og tunglið að nóttu og hin rauð-
leita Mars tengdist járni (ryði?). Blý tengd-
ist Satúmusi vegna þess að blý er þung-
málmur og Satúrnus virtist „hreyfast
hægt“.
í 2. töflu má sjá þessi tengsl og einnig
hvernig þessi nöfn tengjast nöfnum dag-
anna, bæði á latínu, frönsku,
ensku og íslensku.
Rómverjar báru nöfn dag-
anna til germanskra þjóða og
það er athyglisvert að þessar
þjóðir virðast hafa staðfært
guðanöfnin eins og kostur var.
Þannig verður dagur Merkúrs
hjá Rómverjum að degi Wuot-
ans (Óðins) í fomháþýsku
(enska: Wednesday) og senni-
1. mynd. Mismunandi form tins. Mynd Hjörtur
Einarsson.
244