Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 16

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 16
2. tafla. Innbyrðis tengsl nafna málma, himintungla og daga. Dagur Málmur Himintungl Latína Franska Enska íslenska' Gull Sólin dies Solis dimanche Sunday sunnudagur Silfur Tunglið dies Lunae lundi Monday mánadagur Járn Mars dies Martis mardi Tuesday týsdagur Kvikasilfur Merkúr dies Mercurii mercredi Wednesday óðinsdagur Tin Júpiter dies Jovis jeudi Thursday þórsdagur Kopar Venus dies Veneris vendredi Friday frjádagur Blý Satúrnus dies Satumi samdi Saturday þvottdagur/ laugardagur 1 Gömul íslensk heiti frá því fyrir 12. öld. lega er það dæmi um Þórsdýrkun að setja Þór í stað Júpiters, því Þór er frekar hliðstæða Heraklesar. Föstudagur á latínu er dies Veneris og gamla íslenska nafnið Frjádagur tengist Freyju eða Frigg sem gegndi svipuðu hlutverki í norrænni goðafræði og Venus í þeirri rómversku. Leifar af þessum innbyrðis tengslum má ennþá finna í einstökum orðum og hugtök- um, m.a. frá gullgerðarmönnunum. Dæmi um það er hugtakið satúmismi sem notað var fram á þessa öld um blýeitrun. Kvikasilfur (mercury á ensku) er eini málmurinn sem enn ber nafn reikistjörnu. Þessi silfurgljáandi málmur er fljótandi við herbergishita og nafnið kvikasilfur virðist komið til okkar sem þýðing úr latneska heitinu argentum vivum eða „lifandi silfur“. Efnafræðilega táknið (Hg) er á sömu nótum, það er skammstöfun úr hydrargyrum, sem kemur frá gríska hug- takinu hydro-argyros, þ.e. „vatns-silfur“. Eins og áður segir hét einn rómversku guðanna Merkúr; ef til vill kemur nafn hans fram í ensku nafni málmsins og tengir saman hreyfanleika málmsins og það hlutverk Merkúrs að vera sendiboði guðanna. Orðið gull tengist gulum lit; gulur á fornensku var geolu sem kemur frá javl úr sanskrít og þýðir „að skína“. Efnafræði- lega táknið (Au) er stytting á aurum, sem talið er koma frá hari úr sanskrít og þýðir gulur. í þessu samhengi má minna á að Aurora/Aróra var hin rómverska gyðja morgunroðans. Óvissara er um uppruna orðsins silfur; tákn frumefnisins er Ag og er stytting úr latneska heitinu argentum sem á uppruna í orðinu argunas úr sanskrít og þýðir skín- andi. Kopar er táknað í efnafræði með Cu sem er stytting úr latneska orðinu cuprum. Sama orð í grísku er kyprion og þar sjást tengslin milli Kýpur og kopars, en á Kýpur eru miklar koparnámur. ■ 2. FLOKKUR Nöfn tengd himinhnöttum í þessum flokki eru eftirtalin átta frumefni: ceríum, helíum, neptúníum, palladíum, plúton, selen, tellúr og úran. Fimm þessara átta frumefna voru upp- götvuð á árabilinu 1782-1817. Reiki- stjarnan Uranus var uppgötvuð árið 1781 og árið 1798 fannst frumefni sem nefnt var úran eftir plánetunni. í grísku goðafræð- inni var Uranos guð himnanna. Fyrsta smástirnið sem fannst var Ceres, upp- götvað árið 1801. Tveimur árum seinna fékk málmurinn ceríum (Ce) sama nafn, dregið af nafni rómversku gyðjunnar Ceres, gyðju uppskeru og kornræktar. Næsta smástimi var uppgötvað árið 1802 246

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.