Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 42

Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 42
6. mynd. Vakir undan landi Buðlungavalla 25. febrúar 1985. Ljósm. Sigmundur Einarsson. Schoell (1980) hefur og athugað dreif- ingu 8D í lífmynduðu metani (B) miðað við myndunarumhverfi þess. Er hún sýnd á 9. mynd og benda niðurstöður eindregið til þess að gasið í Lagarfljóti eigi uppruna sinn á landi. Þá hafa Nakai o.fl. (1974) tekið til meðferðar samband D/H-hlutfalla 7. mynd. Flokkun gasa úr kolvetnum. í metani frá náttúrunni og í grenndarvatni þess. Gas frá Japan fylgdi jöfnunni: 5D(CH4) = 5D(H,0) - (5160(H20) ± 10)%o (2) Schoell (1980) komst að svipaðri niður- stöðu. Lína þessi er teiknuð á 10. mynd (með skekkjumörkum ± 20%c), og eru niðurstöður Schoells (1980) og þær sem hér er um fjallað settar inn á og flokkaðar. Þar sem 5DH;0 var ekki mælt nú var notuð niðurstaða Braga Ámasonar (1976) um sýni frá Atlavík. Enn flokkast Lagarfljóts- sýnin með jökulruðnings- og mýragasi, þ.e. lífmynduðu, landrænu gasi. Hlutfall 3He/4He er svipað og fundist hefur annars staðar á Austurlandi og á sennilega ekkert skylt við rotnunargasið metan. Radonstyrkur er fremur lítill, en ástæðan er óljós. Ályktanir Á syðsta staðnum, Vallholti, kemur gasið upp við land og er þar minnst blandað andrúmslofti. Við Buðlungavelli og Hreið- arsstaði streymir gasið gegnum vatnið og virðist blandast andrúmslofti. Örlítill en 272

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.