Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 44

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 44
9. mynd. Dreifmg SD í lífmynduðu metani. sem einkennist af þessum mikla jarðlaga- halla og nær það norðan frá Bakkaflóa um Fljótsdal suður í Hornafjörð og þaðan til suðvesturs í átt að Öræfajökli (11. mynd). Gasuppstreymið við innanvert Fljótið er innan hallabeltisins og svo undarlega vill til að jarðbik sem fannst árið 1985 við Lambatungujökul í Skyndidal í Lóni er einnig innan þessa hallabeltis. Hallabeltið er líklega orðið til vegna aukinnar gosvirkni í eystra gosbeltinu í skamman tíma fyrir um 7,5 milljón árum. Við það jókst ferging í gosbeltinu um tíma og afleiðingin varð „mjótt“ belti með óvenjumiklum jarðlagahalla og liggur það samsíða núverandi gos- belti. Ekki er vitað til að nein óvenjumikil setlög af lífrænum uppruna fylgi hallabeltinu né heldur að því fylgi brotakerfi sem leitt gæti gas úr iðrum jarðar. Laus iarðlög Á ísöld hefur skriðjökull legið út Fljótsdal og grafið Lagarfljótskvosina langt niður fyrir núverandi sjávarmál. Fljótið er 111 m djúpt þar sem dýpst er, nokkru utan við Hallormsstað. Þykkt setlaga á botninum er ekki þekkt en jarðlagasnið í borholunni sem boruð var 1966 á aurum Jökulsár bendir til að þykktin sé a.m.k. 10- 20 m víðast hvar og mun meiri í nágrenni árósa. Frá lokum ísaldar hefur Jökulsá fyllt innstu 10 km kvosarinnar með framburði sínum og er þar nú sléttur dalbotn. Dalurinn er um 1,5 km breiður að meðaltali og gera má ráð fyrir að setfyllingin sé um 140 m þykk. Setfyllingin hefur myndast á u.þ.b. 10.000 árum og hefur Jökulsá sett af sér að meðaltali 200-250 þús. tonn á ári við ósana frá lokum ís- aldar. Aurburðarmælingar Vatns- orkudeildar Orkustofnunar benda til að nú setji áin af sér um 300 þús. tonn árlega við ósana en það þýðir að árósamir færast fram um 1,3 m á ári út í Lagarfljót. Ekki er þó hægt að nota þessar tölur til að meta aldur einstakn hluta dal- fyllingarinnar nema 2000-2500 ár aftur í tímann þar sem framburður Jökulsár er háður stærð og rof- mætti Vatnajökuls, en talið er að á fyrri hluta nútíma hafi jöklar verið mun minni en þeir eru nú vegna hlýrra loftslags. 274

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.