Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 56

Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 56
Hins íslenska náttúrufræðifélags, haldinn 26. febrúar 1994, samþykkir að beina þeim tilmælum til umhverfisráðherra, að hann beiti sér af öllum kröftum fyrir því, að Umhverfisráðuneytið taki málefni friðunar vatnasviðs Þingvallavatns í sínar hendur og tryggi, að sjónarmið ólíkra aðila fái lýðræðislega og faglega umfjöllun.“ Fleiri mál voru ekki á dagskrá. For- maður þakkaði starfsmönnum fundar og starfsmönnum félagsins fyrir vel unnin störf á árinu 1993. Fundi var svo slitið um kl. 16. ■ FRÆÐSLUFUNDIR Haldnir voru 6 fræðslufundir á vegum félagsins á árinu. Þeir voru allir haldnir í stofu 101 í Odda, síðasta mánudag hvers vetrarmánaðar (nema desember) kl. 20:30. Hafa fundir þessir verið haldnir á þessum dögum síðan þeir hófust árið 1923. Fyrir- lesarar og erindi voru sem hér segir: 25. janúar: Guðmundur A. Guðmundsson, fuglafræðingur: Umferð hánorrænna farfugla um ísland. Fundinn sóttu 50 manns. 22. febrúar: Guðmundur Halldórsson, plöntusjúkdómafræðingur: Sitkalús. Fundinn sóttu 44 manns. 26. apríl: Guðmundur G. Bjarnason, eðlis- fræðingur: Um ósonlagið. Fundinn sóttu 58 manns. 26. apríl: Borgþór Magnússon, líffræð- ingur: Vistfræði og útbreiðsluhættir alaskalúpínu. Fundinn sóttu 70 manns. 25. október: Trausti Jónsson, veðurfræð- ingur, og Tómas Jóhannesson, jökla- fræðingur: Hlýnun af völdum vaxandi gróðurhúsaáhrifa. Fundinn sóttu 73 manns. 29. nóvember: Sigurður Greipsson, líf- fræðingur: Vistfræði melgresis. Fund- inn sóttu 32 manns. Fundirnir voru jafnaðarlega kynntir í dagskrám dagblaða og útvarps. Kann HIN fjölmiðlum þessum þökk fyrir. Hreggviður Norðdahl sá með aðstoð góðra manna um auglýsingu á fjölmörgum stofnunum og framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu. Háskóla íslands er þakkað fyrir greið afnot af fyrirlestrasalnum og Jóni Kristjánssyni, húsverði í Odda, er þakkað fyrir lipra og trausta aðstoð við undirbúning funda. ■ FERÐIROG NÁMSKEIÐ Famar voru fimm fræðslu- og náttúru- skoðunarferðir á sumrinu 1993. Var þátt- taka í ferðunum sýnu meiri en í ferðunum árið áður. Gætti þar sennilega einkum rénandi hagkrepputilfinningar og þar af leiðandi hugardoða hjá þjóðinni. Einnig kann að hafa valdið nokkru að veður voru skömminni til skárri í ferðunum þetta sumar en hið fyrra, þó þau hefðu vel mátt vera til muna betri. Virkilega gott ferða- veður var í engri ferðanna. Nokkuð er áberandi, hvað veðrið síðustu dagana (fyrir dagsferðir) eða vikurnar (fyrir lengri ferðirnar) á undan ferðum hafa mikil áhrif á endanlega þátttöku, en veðurspár fyrir ferðadagana lítil áhrif. Þessi aukna þátt- taka er athyglisverð í ljósi þess að sam- dráttur hélst áfram í almennum ferðum innanlands. Þrátt fyrir miðlungi góð ferða- veður og langan akstur á stundum voru þátttakendur yfirhöfuð mjög vel ánægðir með ferðirnar. Það er einkum að þakka vandaðri og vel undirbúinni leiðsögn. Fær félagið seint fullþakkað leiðsögumönnum sjálfboðavinnu þeirra við ferðirnar. Sinn þátt í vel heppnuðum ferðum eiga einnig bílstjórarnir hjá Guðmundi Jónassyni, sem hafa jafnan sýnt einstaka lipurð og ástund- un að koma ferðarmönnum á sem þægilegastan hátt á tilætlaða staði. Ber þeim hlý þökk fyrir. Þetta fólk allt á drýgstan þátt í því að ferðir sumarsins tókust í heild séð vel, auk þess glaða og ánægjulega samfélags sem þátttakendur sjálfir voru. Fuglaskoðun Fuglaskoðunarferð var farin suður á Garðskaga laugardaginn 15. maí, með 286

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.