Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 58
í ferðinni voru 22, en fararstjóri var Frey-
steinn Sigurðsson.
Langa ferðin
Langa ferðin var farin 23.-25. júlí á afrétti
Hreppamanna. Leiðsögumenn voru Eyþór
Einarsson, grasafræðingur, og jarðfræð-
ingarnir Ingibjörg Kaldal og Skúli Vík-
ingsson. Höfðu leiðsögumenn tekið saman
8 blaðsíðna leiðarvísi fyrir ferðina.
Lagt var upp frá Umferðarmiðstöðinni
upp úr kl. 9, föstudaginn 23. júlí, og ekið
austur Suðurland, upp Skeið og upp í
Þjórsárdal. Prýðisveður var, lofthiti 14°C
um morguninn í Reykjavík en 8°C í Setri
um kvöldið, hæg norðaustanátt, léttskýjað
og þurrt, nema hvað skúr gerði í Skúms-
tungum upp úr hádeginu. Hádegishlé var
gert uppi á Sandafelli austanverðu, með
útsýn inn yfir Hekluslóðir, Þjórsártungur
og upp til Hofsjökuls. Þar skýrði Eyþór
mun láglendisgróðurs og hálendisgróðurs,
en jarðfræðingarnir skýrðu myndun
malarhjalla í jökullónum, sem stífluð voru
uppi af hjaðnandi jöklum í lok ísaldar,
fyrir um 10.000 árum. Áfram var svo
haldið og stefnt inn á Gljúfurleit við
Þjórsá. I leiðinni var staldrað við og
skoðaður lítill en snotur jökulgarður, sem
liggur þvert um veginn. Komið var við hjá
gangnamannaskálanum í Gljúfurleit og
horft yfir hinn þrönga dal Þjórsár. Þaðan
var farið inn yfir Dalsá og gert kaffihlé í
Bjarnarlækjarbotnum innri, við gangna-
mannaskálann. Þar vella upp kröftugar
lindir á grónum grasbölum. Haldið var
áfram, yfir Miklalæk, en þar er nokkuð
þröngt yfirferðar, inn yfir Kisu og upp um
Norðlingaöldu.
Komið var inn í Setur, hinn glæsilega
fjallaskála ferðaklúbbsins 4x4, um kl. 19
um kvöldið. Skáli þessi er í senn einkar
haganlega útbúinn og sérlega þrifalega um
gengið þar í hvívetna. Er frágangur og
umgengni í samræmi við það stefnumið
ferðaklúbbsins á ökuferðum sínum, að
ferðast akandi án landspjalla. Fengin hafði
verið gisting í skálanum og kann HÍN
ferðaklúbbnum 4x4 beslu þakkir fyrir þau
afnot. Notfærðu flestir sér gistinguna, en
nokkrir slógu þó tjöldum í fjallgolunni.
Um kvöldið gengu margir upp yfir
hrygginn að baki skálans og skoðuðu hið
fagra bólstrabergsgljúfur Blautukvíslar og
strjálan öræfagróðurinn.
Laugardaginn 24. júlí var enn sæmilega
hlýtt, 10 til 15°C, en stíf norðaustan átt og
moldrok víða, þurrt, léttskýjað og sólfar,
en svalt um kvöldið. Lagt var upp um kl.
10 og ekið niður í átt til Hnífár. Er þar
farið um einhverja stærstu sethjalla á
hálendinu, en þeir mynduðust sem óseyrar
jökulvatna út í lón, sem stífluð voru upp
við jaðar hjaðnandi austanjökulsins (frá
Vatnajökulssvæðinu) í ísaldarlokin. Þar
áður náðu jöklar norður á Kjöl, beggja
vegna Kerlingarfjalla. Ekið var austur yfir
Hnífá og upp undir Blautukvísl, en þar eru
sethjallar, malarásar og jökulker sunnan
við kvíslina. Var þar snúið aftur og ekið
rakleiðis niður á Norðlingaöldu, þó að
sandbrekkur væru þungar undir börðum á
stöku stað. Undir öldunni var snúið inn
fyrir Hnr'fá aftur, niðri við Þjórsá og farið
inn að gangnamannaskálanum í Tjarnar-
veri. Þar var áð en jafnframt litið á rústa-
gróður við skálann. Enn var snúið aftur og
farið niður fyrir Hnífá og Kisu. Haldið var
áfram sömu leið til baka niður í Þjórsárdal,
með viðeigandi hléum, en þar var lögð
lykkja á leiðina til að skoða Háafoss.
Horfið var frá því að fara vestur Línuveg,
vegna áliðins dags og lélegs skyggnis.
Þess í stað var ekið niður í byggð með
viðkomu í Gjánni í Þjórsárdal. Þaðan var
ekið um Hreppa að Flúðum, en þangað var
komið undir kl. 19 um kvöldið. Tóku þar
sumir gistingu á hótelinu eða í svefnpoka-
plássum í skólanum en aðrir tjölduðu í
skjóli undan skólavegg, því að komin var
norðaustangjóla og kólnandi.
Sunnudaginn 25. júlí var fremur svalt,
hiti um og innan við 10°C, nokkuð stíf
norðaustanátt og sá víða í moldrok, skýjað
en þurrt og stundum sólarglæta. Lagt var
upp um kl. 10 og ekið upp Hrunamanna-
hrepp og upp á afrétt. Lítið var staldrað
fyrr en áð var í Svínárnesi, en síðan var
haldið inn yfir Rauðá og inn í Leppis-
tungur, fram hjá Miklumýrum og meðfram
288