Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 59
Sandá. Þar var staðnæmst við gangna-
mannaskálann og gengu þaðan sumir upp
með gljúfri Kerlingarár, en aðrir skoðuðu
sig um í nánd við skálann. Eftir kaffi-
hressingu var snúið við og ekin sama leið
til baka. Að var í Tungufellsdal, komið við
hjá Geysi en komið til Reykjavíkur um kl.
21 um kvöldið. Þrátt fyrir mikinn akstur
og minni gang, moldrok og skert skyggni,
voru þátttakendur yfirleitt ánægðir með
ferðina. í ferðinni voru 45 manns, en farar-
stjórar voru Freysteinn Sigurðsson og
Guttormur Sigbjarnarson.
Þincvallaferð
Laugardaginn 18. september var farið
austur að Þingvallavatni. Var ferðin farin í
tilefni af útkomu bókar um Þingvallavatn,
sem fjöldi íslenskra vísindamanna hefur
unnið að, en ritstjóri var Pétur M. Jónas-
son, prófessor í Kaupmannahöfn. Leið-
sögumenn voru Kristján Sæmundsson,
jarðfræðingur, og Sigurður S. Snorrason,
líffræðingur, auk þess sem Hilmar J.
Malmquist, líffræðingur, tók á móti hópn-
um austur við Þingvallavatn. Veður var
þolanlegt, lofthiti 8 til 13°C, austanátt, stíf
á stundum, skýjað en þurrt. Litið var yfir
Þingvelli af vesturbarmi Almannagjár og
megindrættir jarðfræði skoðaðir. Næst var
farið austur að Vatnsvík, en þar höfðu
hinar ýmsu fiskategundir í Þingvallavatni
verið dregnir á land og hafðar til sýnis í
kerum. Þaðan var haldið austur að Davíðs-
gjá og gengið með henni, en líf-
fræðingarnir greindu frá lífi fiskanna í
vatninu. Svo var farið að Miðfelli og
skoðað píkrít í grjótnámu, en þaðan niður
að Sogi og gengið yfir í Skinnhúfuhelli í
Dráttarhlíð. Farið var heim um Nesjavelli.
I förinni voru 20 manns, en fararstjórar
voru Guttormur Sigbjarnarson og Frey-
steinn Sigurðsson. Leiðsögumönnum er
þakkað framlag þeirra og fyrirhöfn. Ferða-
skrifstofu Guðmundar Jónassonar og öku-
mönnum í ferðum félagsins er þökkuð
einstök lipurð og góð og greið þjónusta.
■ ÚTGÁFA
Á árinu kom út 62. árgangur (1992) Nátt-
úrufræðingsins, en í árslok lá fyrir að
miklu leyti efni í næsta árgang og ríflega
það. Standa því vonir til að útgáfan geti
farið að ganga hraðar og eitthvað muni
saxast á hala þann sem á henni er orðinn. í
nóvember kom út bókin „Villt spendýr á
íslandi“, sem gefin er út í samvinnu við
samtökin Landvernd. Bókin er 351 blað-
síða og skreytt fjölda mynda. Höfundar
eru 20 talsins, en fjögurra manna ritnefnd
frá Líffræðifélagi íslands sá um faglegan
undirbúning. Ritstjórar voru tveir, Páll
Hersteinsson, sem sá um faglegu hliðina,
og Guttormur Sigbjarnarson, sem sá um
tæknilegu hliðina. Umhverfisráðuneytið
styrkti útgáfuna. í febrúar 1994 höfðu selst
hátt í 600 eintök. Pétur M. Jónasson,
prófessor í vatnalíffræði í Kaupmanna-
höfn, gaf HÍN 300 eintök af bókinni um
Þingvallavatn (439 síður, á ensku) til
frjálsrar ráðstöfunar. Kann HIN Pétri hina
bestu þökk fyrir, en félagsmönnum er
gefinn kostur á að eignast bókina á
vildarkjörum.
■ ÖNNUR SÝSLAN
Stjórn HÍN veitti umsögn um eftirtalin
lagafrumvörp að beiðni Alþingis: Breyt-
ingar á löguin um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit (mars), Verndun og veiðar
villtra fugla og spendýra, annarra en hvala
(mars). Einnig fjallaði stjórn HÍN um
plaggið „Stefna í náttúruvernd“, sem
Náttúruverndarráð lagði fyrir Náttúru-
verndarþing í október og sent var fjöl-
mörgum aðilum til umsagnar. HÍN var
annar tveggja (sic!) aðila sem skiluðu
athugasemdum fyrir þingið.
289