Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 65

Náttúrufræðingurinn - 1995, Qupperneq 65
slíkt leyfi fæst, á eftir að koma í ljós hvort leptín hefur sömu áhrif á menn og mýs og hvort neysla þess hefur svo óæskilegar aukaverkanir í för með sér að ekki þyki verjandi að nota það til að megra fólk. I besta falli má búast við að fimm til tíu ár muni líða áður en því verði sleppt á mark- að. Eins benda músatilraunir til þess að ekki megi hætta lyfjagjöfinni, þá hallist óðara á ógæfuhlið. Menn yrðu því háðir efninu ævilangt, líkt og sykursjúklingar insúlíni. En þó svo að aldrei verði hægt að gefa mönnum leptín gætu rannsóknir á áhrifum þess vísað á nýjar leiðir í barátt- unni við kalóríurnar. Time, 7. ágúst 1995/The Economist 29. júlí-4. ágúst 1995. ■ GERVIROTTUR TIL KENNSLU Þegar sá sem þetta skráir var við nám í Svíþjóð var ekki langur tími liðinn frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari og enn gengu ýmsar skopsögur frá stríðsárunum. Ein þeirra höfðaði til þess að undir lok stríðsins urðu Þjóðverjar að eta og nota ýmis gerviefni, svo sem gervikaffi og gervibensín. Allt gekk þetta undir nafninu Ersatz. Sagan segir að Þjóðverji hafi á þessum tíma komið landflótta til Svíþjóðar og verið spurður hvort það væri satt að menn neyddust til að eta rottur í Þýska- landi. Hann á að hafa samsinnt því og talið ekkert tiltökumál. En gervirottur, Ratten- ersatz, það væri aumi óþverrinn! Nú virðist tími gervirottunnar vera að ganga í garð. Rottur eru talsvert notaðar við kennslu, einkum í sálarfræði, þar sem þær eru meðal annars þjálfaðar í að rata um hvers kyns völundarhús, hljóta umbun fyrir rétta hegðun og straff fyrir ranga. Fátt eða ekkert í hegðun nagdýranna kemur fræði- mönnum á óvart og að skömmum tíma liðnum, þegar þau hafa náð þeirri leikni sem til er ætlast, verður að farga þeim. Samtök dýravina leggjast gegn þessari meðferð á dýrunum, enda verður ekki séð að sami nauður reki menn til þessa eins og að prófa á rottum og músum efni og að- ferðir sem geti skilið á milli lífs og dauða hjá mönnum. Nú hafa tölvumenn við Háskólann í Toronto hannað rafeindarottu sem komið getur að flestu leyti í stað til- raunadýranna í sálfræðikennslustofunum. Gervirottan Snijfy er raunar aðeins til sem forrit er birtist á skjá. Hún hegðar sér í upphafi eins og vænta má af villtri rottu og lætur skilyrðast á sama hátt og hún. Um sinn líkamnast Sniffy einungis í Macintosh-tölvum en von er á PC-útgáfu undir áramót. Þar sem kvikindið kostar ekki nema 40 dali (hingað komið kannski 5000 krónur með tolli og virðisaukaskatti) telst þetta í senn ódýr og siðleg lausn á vanda sem haldið hefur mörgum veikgeðja sálfræðiprófessorum andvaka. The Economist, 22.-28. júlí 1995. Örnólfur Thorlacius tók saman. 295
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.