Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 15. ágúst 2009 7
Viltu vera í okkar liði?
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis
starfa um 10 þúsund einstaklingar í 40 löndum sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði
að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Sérfræðingur í gæðaeftirliti
Starfið tilheyrir gæðaeftirlitsdeild Actavis hf. og felur í sér útgáfu og viðhald rannsóknarforskrifta og gæðalýsingu pökkunarefna, samþykkt/höfnun á pökkunarefnum,
samþykkt pökkunarforskrifta, rýni, yfirferð og samþykkt á pökkunarskrám, mat á frávikum/utanmarkaniðurstöðum, þátttöku í innri úttektum og eftirliti, gerð og viðhald
skriflegra leiðbeininga og þjálfun starfsmanna. Starfið felur í sér talsverð samskipti við aðrar deildir Actavis, s.s. framleiðslueftirlitsdeild, pökkunardeild o.fl. deildir.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun á sviði raunvísinda. Gerð er krafa um nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð og góð íslensku- og enskukunnátta ásamt
góðri tölvukunnáttu er skilyrði.
Starf við lyfjablöndun
Í lyfjablöndun hjá Actavis fer fram vigtun, blöndun og frumvinnsla hráefna. Í starfinu felst einnig samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting.
Við leitum að duglegum og samviskusömum einstaklingum sem geta tileinkað sér nákvæm vinnubrögð. Reynsla eða þekking á vinnu í framleiðslu er kostur, sem og hæfni
til að tileinka sér starfsemi vélbúnaðar. Grunnþekking í ensku er æskileg. Í lyfjablöndun er um að ræða vaktavinnu. Unnið er á þrískiptum vöktum, viku í senn á dag- og
kvöldvöktum og sjöttu hverja viku á næturvakt.
Starf við lyfjapökkun
Um er að ræða almenn störf við lyfjapökkun sem fela í sér vélakeyrslu í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir vinnslu og skjalfestingu. Einnig tæknilega umsjón/aðstoð
við uppsetningu auk breytinga og stillinga á pökkunarlínum.
Við leitum að nákvæmum og samviskusömum einstaklingum með góða almenna menntun og einnig einstaklingum með iðnmenntun og/eða reynslu af vinnu við vélar.
Grunnþekking í ensku er æskileg.
Í lyfjapökkun er unnin vaktavinna. Unnið er á þrískiptum vöktum, viku í senn á hverri vakt fimm daga vikunnar en fjóra þegar um er að ræða næturvaktir.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 23. ágúst nk.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Hæfniskröfur
Nánari upplýsingar eru veittar hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu í síma 561 5900.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is
Starfssvið
· Aðstoð með umsjón á vélum og tækjabúnaði · Áhugi/þekking á vélum og tækjum
· Góð almenn tölvukunnátta
· Hæfni í mannlegum samskiptum
Lýsi fagnaði 70 ára afmæli sínu
árið 2008. Fyrirtækið hefur það
að meginmarkmiði að vera áfram
framúrskarandi og traustur
framleiðandi afurða sem bæta
heilsu og auka lífsgæði.
Lýsi óskar eftir að ráða laghentan og vandvirkan einstakling í framleiðsludeild. Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 18:00.
Starf í framleiðsludeild
Götusmiðjan óskar eftir
starfsmönnum í eftirfarandi :
Sálfræðing til að leysa af vegna fæðingarorlofs
í 1 ár sem getur byrjað strax.
Meðferðarfulltrúa í vaktarvinnu með
einhverja tónlistarhæfi leika .
Götusmiðjan er meðferðarheimili fyrir ungt fólk á
aldrinum 15 - 20 ára. Staðsett að Brúarholti í
Grímsnesinu 800 Selfoss
Nánari upplýsingar gefur :
Jón Þór Dagskrástjóri í síma 566 - 6100 á milli kl 9 - 17
virka daga eða senda á jonþor@gotusmidjan.is