Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR
15. ágúst 2009
3
Von er á 41 skiptinema hingað til
lands á vegum AFS í lok mánað-
arins en það er svipaður fjöldi og
undanfarin ár. „Kreppan virðist
ekki vera að að fæla skiptinem-
ana frá en við verðum þó ekki vör
við aukningu þótt það sé ódýrara
að koma hingað en oft áður. Það
skýrist ef til vill af því að efna-
hagurinn ytra er ekki eins góður
og áður og því leggja færri land
undir fót,“ segir Eyrún Eyþórs-
dóttir, framkvæmdastjóri AFS á
Íslandi.
AFS eru alþjóðleg fræðslu-
samtök sem starfa í yfir fimm-
tíu þjóðlöndum. Aðalviðfangsefni
þeirra hér á landi eru nemenda-
skipti unglinga á aldrinum 16-19
ára. Markmið samtakanna er að
auka kynni og skilning milli þjóða
heims og fólks af ólíkum uppruna,
víkka sjóndeildarhring ungs fólks
og auka menntun þess. „Við trúum
því að með auknum samskiptum
á milli ólíkra menningarheima
verði til aukinn skilningur sem
kemur í veg fyrir stríð og átök, en
á þeirri hugmyndafræði byggja
samtökin,“ segir Eyrún.
Hún segir ganga örlítið verr að
finna fjölskyldur fyrir nemana
en áður og þá sérstaklega á höfuð-
borgarsvæðinu. „Við erum þó að
bæta við fjölskyldum á lands-
byggðinni sem er afar ánægju-
legt.“
Eyrún segir að þeir sem taki að
sér skiptinema geri það af hug-
sjón og áhuga. „Fósturfjölskyld-
urnar þurfa að veita skiptinem-
unum mat og húsaskjól en þær
græða heilmikið sjálfar. Rann-
sóknir hafa sýnt að skiptinemar
og fósturfjölskyldur hljóta forskot
er varðar færni til að leysa vanda-
mál auk þess sem þær auka sam-
skiptahæfni sína. Þá eykst menn-
ingarleg aðlögunarhæfni beggja
aðila og oftar en ekki myndast
ævilöng vinabönd.“
Eyrún segir fólk á framhalds-
skólaaldri hvað best til þess fall-
ið að fara í skiptinám og að í því
sé mikil fjárfesting fólgin. „Fólk
á þessum aldri er svo móttæki-
legt og rannsóknir hafa sýnt að
leiðtogahæfni þess eykst auk þess
sem það er líklegra til að fara í
háskóla- og doktorsnám.
AFS óskar eftir fósturfjölskyld-
um af öllum stærðum og gerð-
um og eru engar kröfur gerðar
um fjölskyldusamsetningu. Þær
þurfa umfram allt að vera góðar
og tilbúnar til að leyfa skiptinem-
unum að taka þátt í lífi og starfi
fjölskyldunnar. Áhugasömum er
bent á heimasíðuna www.afs.is.
vera@frettabladid.is
Skiptinemar vilja koma
Fjöldi skiptinema er væntanlegur til landsins á næstunni þó að enn vanti nokkur heimili til að hýsa þá.
Eyrún Eyþórsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi, segir fjölskyldur taka að sér skiptinema af hugsjón.
SKÓLAVÖRUR eru misdýrar eftir verslunum. Þessu komust Neytenda-
samtökin að í nýrri smákönnun sem sjá má á vef samtakanna www.ni.is.
Gerð var verðkönnun á fjórum hlutum og var mesti munurinn 460 prósent á
milli verslana.
AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir fimmtíu þjóðlöndum. MYND/AFS
Innritun fer fram á www.tskoli.is
Kvöldskóli
Byggingatækniskólinn
Raftækniskólinn
Tæknimenntaskólinn
Véltækniskólinn
Meistaraskólinn
Fjarnám
Byggingatækniskólinn
Fjölmenningarskólinn
Upplýsingatækniskólinn
Skipstjórnarskólinn
Raftækniskólinn
Véltækniskólinn
Meistaraskólinn
Diplómanám
Endurmenntunarskólinn
• Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu
- Útvegsrekstrarfræði
- Flugrekstrarfræði
- Almenn lína í rekstri og stjórnun
- Rekstrarfræði
• Lýsingarfræði
• Lýsingarhönnun
Flugskóli Íslands
Í september hefjast:
• MCC námskeið
• ATPL námskeið
• PPL námskeið
(einkaflugmannsnámskeið)
• Flugkennaranámskeið
www.flugskoli.is
Það er leikur að læra
Innritun lýkur 26. ágúst.
Aðstoð við innritun er 26. ágúst frá kl. 16 :00 – 19:00.
Innritun í kvöld- og f jarnám er haf in
Betra nám býður upp á fjölbreytt og hnitmiðuð námskeið sem efl a
námsgetu fyrir allan aldur:
• Er lesturinn vandamál?
• Gengur margföldun illa?
• Er reiknað á fi ngrum?
• Tekur námið of langan tíma?
• Bregst minnið?
Lærðu námstækni sem nýtist til frambúðar:
• Davis lesblindunámskeið
• Fjarnámskeið sem efl ir hugarreikning og margföldun
• Hraðlestur
• Minnistækni
• Glósutækni (Hugarkort)
Erfi ðleikar með lestur
eða stærðfræði?
Persónuleg þjónusta
Betra nám - www.betranam.is
Kjarna - 270 Mosfellsbæ
s. 566 6664