Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 86
62 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. endafjöl, 6. þys, 8. skáhalli, 9. var-
kárni, 11. samanburðart., 12. hestur,
14. ástaratlot, 16. býli, 17. sarg, 18.
annríki, 20. samtök, 21. land í Asíu.
LÓÐRÉTT
1. korntegund, 3. frá, 4. brjósthimna,
5. gæfa, 7. biðja innilega, 10. blekk-
ing, 13. spil, 15. seytlar, 16. ófarnaður,
19. nafnorð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gafl, 6. ys, 8. flá, 9. gát, 11.
en, 12. gráni, 14. blíða, 16. bæ, 17.
urg, 18. önn, 20. aa, 21. laos.
LÓÐRÉTT: 1. bygg, 3. af, 4. fleiðra, 5.
lán, 7. sárbæna, 10. tál, 13. níu, 15.
agar, 16. böl, 19. no.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Um 3.000 manns.
2 Mjóafjarðarbrú.
3 Geirfuglarnir.
Davíð Berndsen
Aldur: 24 ára.
Búseta: 101 miðbærinn.
Starf: Tónlistarmaður og hljóð-
maður.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Fjölskylda: Bróðir minn, Viðar
Berndsen, og svo mamma og pabbi.
Davíð Berndsen hefur vakið athygli fyrir
myndbandið við lagið Supertime.
Kvikmyndaleikstjórarnir Friðrik
Þór Friðriksson og Lars von Trier
opna myndlistarsýningu saman í
Listasafni Reykjavíkur − Hafnar-
húsi í byrjun september. Þar verða
sýnd málverk sem máluð hafa
verið upp úr kvikmyndum þeirra.
Sýningin kallast Börn náttúrunnar
vs. Antíkristur og vísar nafnið til
þekktustu myndar Friðriks og nýj-
ustu myndar von Triers. „Þeir hafa
hvor um sig valið sex ramma úr
þessum kvikmyndum og þeir voru
síðan málaðir í Kína. Listaverkin
urðu til hjá handverksmönnum
þar, í anda fjöldaframleiðslu eins
og bíómyndir eru gerðar,“ segir
Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri
hjá Listasafni Reykjavíkur.
Sýningin verður opnuð 3. septem-
ber og undirbúningur er því á loka-
stigi. Verkin eru á leið til landsins
frá Kína, en verk von Triers koma
fyrst við hjá honum í Danmörku.
Verkin eru reyndar engin smá-
smíði, 2,80 metrar sinnum 3,20.
Soffía segir að verkin komi ekki
fullmótuð frá verktökunum í Kína.
Listamennirnir Friðrik og von
Trier fái verkin í hendur og setji
þá handbragð sitt á þau; einhvers
konar fingrafar eða undirskrift.
Ari Alexander hefur auk þess tekið
saman eins konar sinfóníu úr verk-
um leikstjóranna beggja og verður
því verki varpað á skjái í sýningar-
salnum.
Sýningin er haldin á sama tíma
og RIFF og Nordisk Panorama
og verður sameiginleg dagskrá í
Hafnarhúsinu af því tilefni. Hins
vegar er ólíklegt að Lars von Trier
verði viðstaddur opnunina: „Hann
er ferðafælinn mjög. Því miður
gerum við ekki ráð fyrir því að
hann komi,“ segir Soffía. - hdm
Friðrik Þór og von Trier í startholunum
STÓR VERK Hér er ein mynda Friðriks, fræg sena úr Börnum náttúrunnar. Kínverskir
verktakar halda verkinu uppi, en það er 2,80 sinnum 3,20 metrar að stærð.
„Við munum auglýsa eftir þátt-
takendum auk þess sem við sér-
veljum nokkra,“ segir Pálmi Guð-
mundsson sjónvarpsstjóri Stöðvar
2.
Það stendur mikið til á Stöð 2
sem horfir nú fram á risavaxið
verkefni sem ákveðið hefur verið
að ráðast í. Tekist hafa samningar
við rétthafa hinna vinsælu sjón-
varpsþátta „Wipeout“ – sem áhorf-
endur Stöðvar 2 þekkja svo vel –
um gerð íslenskrar útgáfu þessara
þátta. Fyrir þá sem ekki þekkja
ganga þættirnir út á eins konar
vatns-leðju-þrautakóng í nokkr-
um umferðum og detta keppend-
ur út þar til einn stendur eftir
sem vatns-þrautakóngur. Tökur
fara fram í byrjun október og
verða þættirnir á dagskrá Stöðv-
ar 2 fljótlega eftir áramót. Ekki
verður ráðist í að smíða umgjörð
eða þrautabraut hér heldur á
að fljúga með þátttakendur til
Buenos Aires í Argentínu. Þar er
að finna heimsins stærstu þrauta-
braut. Þarna eru bandarísku og
bresku þættirnir teknir upp. Og
sá íslenski. „Aldrei áður hefur
íslensk sjónvarpsstöð fengið að
taka upp þáttaröð í erlendri sviðs-
mynd. Þessir þættir hafa farið
sigurgöngu um heiminn þó hug-
myndin að þeim sé ekki nema eins
og hálfs árs gömul,“ segir Pálmi.
Þátttakendur verða hundrað og
tuttugu talsins og verður auglýst
eftir þeim sérstaklega í lok þessa
mánaðar og sitja umsækjendur
meðal áskrifenda Stöðvar 2 fyrir.
Má búast við því að handagangur
verði í öskjunni því þeir fá flug
sér að kostnaðarlausu sem og gist-
ingu og uppihald í Buenos Aires.
Auk þess verða nokkrir þátttak-
enda sérvaldir meðal þekktra
Íslendinga og Pálmi segir að leitað
verði til fólks úr pólitík, skemmti-
bransanum, íþróttamanna og kyn-
legra kvista sem og hins almenna
borgara.
Spurður um kostnað segir Pálmi
hann verulegan, á því sé engin
launung, en samt sé það svo að
talsvert ódýrara sé að vinna þætt-
ina úti í Argentínu og flytja mann-
skapinn út en smíða leikmyndina
hér heima. „Við byggjum loft-
brú milli Keflavíkur og Buenos
Aires,“ segir Pálmi.
Í þáttunum leika kynnar stórt
hlutverk og er ekki búið að ganga
frá neinu í þeim efnum. Verið var
að ganga frá samningum og nú
er verið að skipa í hlutverk. En
eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst stendur valið á milli þeirra
tveggja dúetta sem Stöð 2 hefur
reitt sig hvað helst á að undan-
förnu: Sveppa & Audda eða Simma
& Jóa. jakob@frettabladid.is
PÁLMI GUÐMUNDSSON: FLÝGUR MEÐ ÞÁTTTAKENDUR TIL BUENOS AIRES
Íslenskt Væpát í Argentínu
SJÓNVARPSSTJÓRINN
OG HELSTU STJÖRN-
UR STÖÐVARINNAR
Munu allir koma að hinu risavaxna verk-
efni sem Stöð 2 nú ræðst í með að fljúga
vel rúmu hundraði Íslendinga til Argentínu
þar sem tekin verður íslensk útgáfa af
hinum vinsælu Væpát-þáttum.
Stöðvar 2 menn gera
sér miklar væntingar
til þess að þáttaröðin
Ástríður, sem senn
verður á dagskrá
Stöðvar 2, muni
hitta í mark
meðal sjón-
varpsáhorfenda, svo mjög að nú
þegar er verið að leggja drög að
framhaldi. Og sitja þær nú yfir því
vinkonurnar Ilmur Kristjánsdóttir,
sem er í aðalhlutverki, og leikstjór-
inn Silja Hauksdóttir. Talsvert er um
liðið frá því tökum lauk en eftir-
vinnslan hefur tekið tímann sinn.
Ókrýnd sultudrottning
Íslands, Dísa Anderi-
man, stendur tíunda
sinni fyrir sérlegri
sultukeppni á
hinum ágæta
útimarkaði í
Mosfellsdal.
Fréttablaðið fjallaði um það og
hinn heillandi heim sultugerðar-
innar í frétt í gær – en svo slysalega
vildi til að skilja má á fréttinni að
keppnin fari fram í dag en ekki
29. þessa mánaðar sem er raunin.
Menn hafa þá borð fyrir báru í
sultugerðinni en Dísa hefur uppi
stór orð um linku annarra sveitar-
félaga og getuleysi karlmanna í
tengslum við keppnina – en konur
í Mosó hafa einokað hana frá
upphafi.
Nú sér fyrir enda á ritun ævisögu
Magnúsar Eiríkssonar sem
einlægur aðdáandi Magnúsar,
útgefandinn Tómas Hermannsson,
skráir. Verklagið hefur verið að þeir
keyra um og segulbandið rúllar
meðan Magnús segir frá litríkri ævi
sinni. Þeir ætla nú um helgina að
keyra 1.500 kílómetra, til Hafnar í
Hornafirði þar sem haldnir verða
tónleikar og aftur á
Hallormsstað næsta
dag. Slá má á að þeir
félagar hafi keyrt um
sjö þúsund kílómetra
við ritun bókarinnar,
sem er líkt og að fara
hringveginn fimm
sinnum. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þeir eru ekki með sama „skets“
og eru með sinn í allt öðru „kons-
epti“,“ segir Friðrik Ágústsson,
viðskiptastjóri hjá auglýsingastof-
unni Jónsson & Le‘macks.
Grínatriði sem Steindi Jr. gerði
fyrir sjónvarpsþáttinn Monitor á
SkjáEinum þykir svipa til nýrrar
sjónvarpsauglýsingar sem Jóns-
son & Le‘macks vann fyrir Stöð
2 þar sem Jack Bauer úr þáttun-
um 24 kemur við sögu. Í atriðinu
hjá Steinda er hann klipptur inn í
grimmilega yfirheyrslu þar sem
Bauer setur poka yfir hausinn á
honum. Bauer er einnig klippt-
ur inn í auglýsingu Stöðvar 2 en
Friðrik telur að um hreina tilvilj-
un sé að ræða. „Þetta er hugmynd
sem kom frá okkur á vormánuðum
og upptökur hjá okkur fóru fram
á miðju sumri,“ segir Friðrik og
útilokar að hugmyndin hafi verið
fengin að láni frá Steinda. Hann
bætir við að svipuð herferð í
tengslum við enska boltann hafi
hafist fyrir þremur vikum, löngu
áður en grínatriðið frá Steinda fór
í loftið.
Steindi útilokar sjálfur að hafa
stolið einu né neinu og telur einnig
mögulegt að um tilviljun sé að
ræða. „Ég er með nóg í pokahorn-
inu og ég þarf ekkert að vera að
stela af neinum,“ segir hann.
Steindi var boðaður á fund
hjá Jónsson & Le‘macks í gær
þar sem farið var yfir málið og
skildu allir sáttir samkvæmt
Friðriki. - fb
Íslenskir grínarar hrifnir af Jack Bauer
BAUER VINSÆLL Steindi Jr. hefur vakið mikla athygli fyrir grínatriði sín í sjón-
varpsþáttunum Monitor. Þar er hann yfirheyrður af Jack Bauer. Sama hug-
mynd mun vera notuð í auglýsingu Stöðvar 2. Þar mun Georg Bjarnfreðar-
son koma við sögu. Báðir aðilar neita að hafa stolið hugmyndinni.