Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 30
30 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Dynjandi lófatak í
Háskólabíói
Fullt var langt út fyrir dyr þegar heimildarmyndin Stelpurnar okkar, eftir
sjónvarpskonuna Þóru Tómasdóttur, var forsýnd í Háskólabíói síðastliðinn
fimmtudag. Fjöldi fólks þurfti að láta sér nægja að sitja í tröppunum á
meðan á myndinni stóð. Það virðist þó ekki hafa haft áhrif á upplifun
þeirra sem klöppuðu milli atriða og skelltu ítrekað upp úr. Jafnvel mátti sjá
tár á hvörmum. Arnþór Birkisson, ljósmyndari Fréttablaðsins, festi bíógesti á
filmu áður þeir gengu í salinn.
SJÁÐU! Sigmar Guðmundsson sýnir
Barða Jóhannssyni ljósmynd sem hann
tók, ef til vill af einni af mörgum stjörn-
um Stelpnanna okkar.
STELPUR Marsibil Sæmundardóttir og
Ragnhildur Magnúsdóttir mættu prúð-
búnar á forsýninguna.
SPENNTIR Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Hermann Gunnarsson, sjónvarpsmaður
og skemmtikraftur, Halldór Einarsson, eigandi Henson, og Guðmundur Hreiðarsson
markmannsþjálfari gátu varla beðið eftir að myndin byrjaði.
VIGDÍS OG AÞENA Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands, mætti með
barnabarni sínu, Aþenu Vigdísi.ÞÓRA OG STELPURNAR Heimildarmyndin Stelpurnar okkar fjallar um dugnað, þrautseigju, drauma og sigra þessa öfluga hóps.
Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum í sumar eru
á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000.
Vídeóverk
„bernsku minnar fossar“
Skúlptúrar
„brot úr tilverunni“
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
11
79
Sýningin er opin virka daga frá kl. 13–17 og um helgar frá kl. 13–18 í allt sumar.
Aðgangur er ókeypis.
Kristjana
Samper
Ljósafossstöð við Sog