Fréttablaðið - 15.08.2009, Blaðsíða 70
46 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Eitt helsta tromp Einars Bárðarsonar
á nýrri útvarpsstöð er Gulli Helga.
Dramatískar vendingar urðu hins
vegar áður en endanlegir samningar
tókust.
„You like me, you really like me,“ segir
útvarpsmaðurinn Gulli Helga kátur og vitnar
í Sally Field þegar hún loks fékk Óskarsverð-
launin. „Það er ofsalega gaman, eftir 25 ár og
að hafa verið á geymslusvæði, á bekknum, að
fá allt í einu svona tilboð, að allt í einu sé þörf
á manni einhvers staðar.“
Frá því hefur verið gengið að Gulli Helga
stýri morgunþætti á Kananum, útvarpsstöð
Einars Bárðarsonar, sem hefur útsendingar
1. september. Einar sparar hvergi stóru orðin
þegar hann lýsir hæfileikum Gulla og hér
eru nokkur stikkorð: „Einn langvinsælasti og
reyndasti útvarpsmaður þjóðarinnar ... einn
eftirsóttasti sjónvarpsmaður landins ... Tveir
með öllu sem var á dagskrá FM957 og Bylgj-
unnar frá árunum 1991 til 1993 hafi gert nöfn
Jóns Axel og Gulla Helga að goðsögnum í
útvarpi. Fáir ef þá nokkrir útvarpsþættir hafa
notið jafn mikilli vinsælda á Íslandi... Að fá
Gulla til liðs við sig í útvarpi er eins og að fá
heila hæð af samstarfsmönnum ... Þegar farið
verður yfir útvarpssögu þessarar þjóðar þá
verða þar nokkur nöfn sem munu bera höfuð
og herðar yfir önnur. Gulli verður þar í efstu
línunni enda fáir ef nokkrir komið jafn víða
við í sögu frjáls útvarps á Íslandi. Stór dagur
fyrir Kanann ...“ Gulla finnst nóg um. „Já, ég
er búinn að sjá þessa ræðu,“ segir Gulli, sem
lengi var mjög tvístígandi. Frá þessu hafði
nánast verið gengið en þá kom bakslag, þegar
365-menn fréttu af því að Gulli væri að ganga
til liðs við Einar, var dregin fram á teikni-
borðið gömul hugmynd um smíðaþætti – líf og
yndi Gulla. „Ég er Bulli byggir og Bulli bygg-
ir hefur bara gaman að því að byggja upp. Það
er það sem ég kann. Hvort sem það eru hús
eða útvarpsstöðvar. Maður hefur byggt upp
útvarpsstöðvar með misgóðum árangri. Þetta
er sú 3. í röðinni og allt er þegar þrennt er.“
Ljóst er að menn hafa boðið rausnarlega í
Gulla og hann svarar spurningu þess efnis
svona: „Ég hef efni á að kaupa mér tyggjó.“ Og
með vísan til Tveggja með öllu, hvort útvarps-
hlustendur megi vænta endurkomu Jóns og
Gulla, segir Gulli dularfullur: „Við útilokum
ekkert í þeim efnum. Þetta er rétt að byrja. Og
verður ógeðslega gaman.“ jakob@frettabladid.is
Bitist um Gulla Helga
GULLI Í FULLUM SKRÚÐA Eftir myndatöku hjá Einari
stóðu Gulla skyndilega allar dyr opnar – en hann ákvað
að endingu að taka þátt í uppbyggingu Kanans þar
sem allt er tilbúið undir tréverk.
Kate Winslet hefur verið orðuð
við aðalhlutverkið í stuttri sjón-
varpsþáttaröð sem nefnist Mil-
dred Pierce sem HBO ætlar að
framleiða. Þáttaröðin er byggð
á skáldsögu James M. Cain en
leikstjóri og handritshöfundur
verður Todd Haynes, sem hefur
gert myndirnar I´m Not There og
Velvet Goldmine. Gerð var kvik-
mynd eftir skáldsögu Cains árið
1945 með Joan Crawford í aðal-
hlutverki og fékk hún Óskars-
verðlaun fyrir frammistöðu sína
sem húsmóðir sem ákveður að
hella sér í veitingahúsabransann
með ófyrirséðum afleiðingum.
Kate Winslet
í sjónvarpið
KATE WINSLET Á leið í sjónvarp.
> BARN Á LEIÐINNI?
Bruce Willis giftist fyrirsætunni Emmu
Heming í mars. Hann segist aldrei hafa
verið hamingjusamari og viður-
kennir að sig langi gjarnan í fleiri
börn, en Willis, sem er 54 ára, á
þrjár dætur með fyrrum eigin-
konu sinni Demi Moore. Í banda-
ríska sjónvarpsþættinum Acc-
ess Hollywood sagðist leikar-
inn ekki viss um að þau Emma
eignuðust börn, en tók fram að
hún væri yndisleg manneskja
sem hann nyti lífsins með.
„Þetta er bara hlutur sem allir verða
að prófa. Ég get voða lítið sagt annað.
Þetta er bara svo gaman að ég held
varla vatni þegar ég fer fram úr á
morgnana,“ segir Karim Djermoun um
Go-Kart brautina á Korputorgi. Braut-
in verður formlega opnuð í dag, en
Karim var með brautina á Reykjanesi
fyrir fjórum árum.
„Þetta er bara á bílastæðinu á Korpu-
torgi, við erum með mjög stórt svæði
til að leika okkur á, því það er ekkert
að gerast á Korputorgi, fyrr en núna.
Ef vel gengur liggur á borðinu að fá
að fara inn í Korputorg, í stærsta bilið
beint fyrir miðju. Þá er þetta fyrst
orðið fyrir alvöru.“
Svæðið er 3.500 fermetra og er braut-
in 900 metra löng sem gerir hana þá
stærstu sem nokkurn tíma hefur verið
á landinu. Þá eru 1.500 dekk og 3 kíló-
metrar af öryggisborðum um brautina.
Loks skartar hún fullkomnum tíma-
tökubúnaði. Karim segir þegar mikla
traffík. „Við erum búnir að vera með
opið til að koma okkur í gang og prófa
bílana.“
Keppni á vegum FM957 hefst á
mánudag, hið svokallaða Zúúber-race.
„Þeim sem verða með þrjátíu bestu
tímana fyrir þessa viku gefst tækifæri
á að taka þátt í keppni sem verður á
föstudaginn í næstu viku, sem verður
þá útvarpað beint frá Korputorgi. Það
verður alvöru, með upphitun, tímatöku
og loks keppni. Svo erum við að skora
á alþingismenn að koma og keyra hjá
okkur eftir að Icesave-málið klárast.
Þeir eru búnir að taka ansi vel í það.
Ég hugsa að við fáum einhverja frækna
alþingismenn til að koma í næstu viku
og þá verður Ísland í dag á staðnum.“
- kbs
Go-Kart braut á Korputorgi
STÆRST OG BEST Almenningur streymir á nýja
Go-Kart braut á Korputorgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR